Manchester Unted mistókst að skora gegn Valencia og endaði leikurinn á Old Trafford með markalausu jafntefli í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
United var miklu meira með boltann í leiknum en vantaði að skapa sér alvöru færi.
Romelu Lukaku framherji United var slakur í leiknum og það pirraðir liðsfélaga hans.
,,Við fengum líklega bestu færin til að vinna, ég verð að taka þessum úrslitum. Ég sagði á undirbúningstímabilinu að annað sætið í fyrra hefði verið magnað, ég segi ekki meira en það,“ sagði Jose Mourinho eftir leik.
Mourinho gagnrýndi svo tæknilega getu varnarmanna sinna.
,,Leikmenn reyndu, þeir gáfu allt í lekikinn en við eigum ekki svo kraftmikla leikmenn. Við erum ekki með tæknilega getu til að byggja upp frá varnarlínunni.“
,,Við reyndum að stoppa lið sem er gott að sækja hratt, við vissum að við myndum ekki fá 20 færi. Sóknarmenn okkar eru ekki að eiga góða tíma, við héldum að þrjú eða fjögur færi myndu duga til að vinna.“