Jose Mourinho stjóri Manchester United óttast það alls ekki að missa starfi sitt ef illa fer á morgun.
United hefur byrjað mjög illa á þessu tímabili og er nú níu stigum frá toppnum í ensku úrvalsdeildinni. Þá er liðið úr leik í deildarbikarnum.
United mætir Valencia á morgun í Meistaradeildinni á heimavelli, fari illa er ekki útilokað að Mourinho verði rekinn.
Stjórinn frá Portúgal þekkir það að fá stígvélið en United þarf að greiða honum um 25 milljónir punda ef félagið ákveður að reka hann.
,,Ég hef ekki áhyggjur af mínu starfi,“ var svar Mourinho í dag þegar hann var spurður hvort hann óttaðist að starf hans væri í hættu.