Þóroddur Hjaltalín hefur verið valinn besti dómarinn í Pepsi-deild karla fyrir sumarið 2018.
Þetta var staðfest nú rétt í þessu en það eru leikmenn deildarinnar sem sjá um að velja.
Þóroddur er talinn einn allra besti dómari sem Ísland á og þótti standa sig vel í sumar.
Dómgæslan á Íslandi var heilt yfir nokkuð góð í sumar og er Þóroddur vel að verðlaununum kominn.