fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Benedikt Bóas lætur „báknið“ í Laugardalnum heyra það – ,,KSÍ hefur ekki áhuga á Pepsi deildinni“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 25. september 2018 13:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa áhyggjur af því hvernig komið er fyrir mætingunni á Pepsi deild karla, enn eitt árið stefnir í það að mætingin fari niður á við.

Félögin hafa reynt að gera sitt besta til að bæta umgjörðina en það hefur engu skilað. Íslenskur toppfótbolti vill sjá meira um deildina og taka það verkefni úr höndum KSÍ.

Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður á Fréttablaðinu mætti í Harmageddon í dag að ræða þetta

,,KSÍ hefur ekki áhuga á Pepsi deildinni,“ sagði Benedikt Bóas í Harmageddon.

Benedikt telur að KSÍ hafi ekki tíma fyrir deildarkeppni á Íslandi, öll einbeiting sé á A-landsliðinu.

,,Þetta bákn niðri í Laugardal, sinnir A-landsliði karla. Þar komast 90 prósent af tekjum, þeir eru búnir að gleyma því að hér sé spilaður fótbolti á sumrin.“

,,Það var hrun í mætingu í fyrra, það var fyrsta sumarið þar sem það kostaði 2 þúsund krónur inn, fleira og fleira. KSÍ stofnaði starfshóp um að þessu ætti að taka á, það er níu mánaða bið eftir tímabilinu. Það er nægur tími, er það ekki?.“

Íslenskur toppfótbolti, hagsmunarsamtök liða í tveimur efstu deildum vill fá verkefnið frá KSÍ að sjá um deildina.

,,Íslenskur toppfótbolti er búið að grátbiðja að fá mótið í sínar hendur, það er HM ár. KSÍ er upptekið við það, trúlega er það skiljanlegt. Það er skiljanlegt að allir starfsmenn séu á HM, þar sem eru 20 starfsmenn. Íslenskur toppfótbolti sem eru 24 stærstu lið landsins, þeir vilja fá mótið. Að þeir geti skipulagt mótið og séð um markaðsefnið, það var reynt í fyrra en það er fullreynt núna að KSÍ komi eitthvað að þessu. Það verður allt brjálað á ársþingi KSÍ í febrúar.“

Viðtalið er í heild hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fundurinn í London gekk ekki vel

Fundurinn í London gekk ekki vel