Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Njósnarar Barcelona fylgdust með miðjumanninum Paul Pogba á dögunum er Manchester United mætti Young Boys í Meistaradeildinni. (Mundo Deportivo)
Besiktas í Tyrklandi hefur áhuga á framherjanum Olivier Giroud sem verður samningslaus næsta sumar. (Goal)
Adrien Rabiot, miðjumaður Paris Saint-Germain, er opinn fyrir því að semja við Manchester City næsta sumar. (Metro)
Barcelona ætlar að leggja fram annað tilboð í miðjumanninn Ander Herrera sem spilar með Manchester United. (Sun)
Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, hefur áhuga á því að taka við Marseille í Frakklandi einn daginn en hann spilaði þar sem leikmaður. (L’Equipe)
Glenn Murray hefur ekki rætt við Brighton um að framlengja samning sinn þrátt fyrir að hann renni út næsta sumar. (Talksport)
Rafael Benitez, stjóri Newcastle, veit ekki hversu mikið hann má eyða hjá félaginu í janúar. (Chronicle)
Bakary Sako, fyrrum framherji Wolves, er á reynslu hjá West Brom þessa stundina en hann yfirgaf Crystal Palace eftir síðustu leiktíð. (Express)