Cesc Fabregas, leikmaður Chelsea, segir að félagið þurfi að gera allt mögulegt í sumar til að halda Eden Hazard.
Hazard er sterklega orðaður við bæði Real Madrid og Barcelona en hann er sjálfur opinn fyrir því að fara.
,,Ég ætla ekki að ljúga að ykkur, við tölum saman mjög reglulega,“ sagði Fabregas.
,,Hann er besti leikmaður liðsins og Chelsea þarf að halda sínum bestu leikmönnum.“
,,Hann veit það að stuðningsmennirnir elska hann og við elskm að pila með honum. Auðvitað viljum við halda honum.“