Neymar, leikmaður Paris Saint-Germain, telur að félagið hafi borgað of mikið fyrir sig á síðasta ári.
Neymar varð dýrasti leikmaður heims er hann gekk í raðir PSG en hann var áður á mála hjá Barcelona.
Neymar kostaði PSG 222 milljónir evra en það er ekki eitthvað sem Brasilíumaðurinn montar sig yfir.
,,Ég er ekki stoltur af þessari upphæð eða þeirri staðreynd að ég sé sá dýrasti í sögunni,“ sagði Neymar.
,,Þetta eru bara peningar og ekki meira en það. Ég get ekkert af þessu gert. Ég hefði borgað minna fyrir mig.“