Fram vann gríðarlega góðan sigur í Inkasso-deild karla í kvöld er liðið fékk Hauka í heimsókn.
Fram vann sannfærandi sigur á Laugardalsvelli 3-1 þar sem Portúgalinn Tiago Fernandes gerði tvennu.
Tiago skoraði sín mörk á 43 og 48. mínútu leiksins áður en Brassinn Fred Saraiva bætti við því þriðja á 62. mínútu. Gunnar Gunnarsson minnkaði svo muninn fyrir Hauka undir lok leiksins.
Þróttur Reykjavík gerði þá góða ferð á Selfoss og vann þar heimamenn með einu marki gegn engu.
Ólafur Hrannar Kristjánsson gerði eina mark leiksins á 62. mínútu síðari hálfleiks.
Njarðvík vann svo ÍR með tveimur mörkum gegn einu þar sem Arnór Björnsson reyndist hetja liðsins undir lokin.
Fram 3-1 Haukar
1-0 Tiago Fernandes
2-0 Tiago Fernandes
3-0 Fred Saraiva
3-1 Gunnar Gunnarsson(89′)
Selfoss 0-1 Þróttur R.
0-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson
ÍR 1-2 Njarðvík
0-1 Magnús Þór Magnússon
1-1 Máni Austmann Hilmarsson(víti)
1-2 Arnór Björnsson