Bæði Atletico Madrid og Monaco hafa staðfest það að félögin hafi komist að samkomulagi um félagaskipti leikmannsins Thomas Lemar.
Bæði félög gáfu frá sér tilkynningu í kvöld þar sem greint er frá því að samkomulag sé í höfn en enn er verið að vinna í smáatriðum.
Kaupin á leikmanninum ættu að vera klár á næstu dögum og vonandi fyrir fyrsta leik Frakklands á HM.
Lemar hefur margoft verið orðaður við stórlið en Arsenal og Liverpool reyndu að fá hann í sínar raðir á síðasta árið.
Lemar hafði sjálfur alltaf áhuga á að færa sig um set og fær nú tækifærið í betri deild á Spáni.