Saint-Etienne tók á móti PSG í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Remy Cabella kom heimamönnum yfir strax á 17. mínútu og hann misnotaði svo vítaspyrnu , fimmtán mínútum síðar og staðan því 1-0 í hálfleik.
Mathieu Debuchy varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma og lokatölur því 1-1.
PSG er sem fyrr á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar með 84 stig en Saint-Etienne er í níunda sæti deildarinnar með 43 stig.