Vonskuveður á norðvestur horninu – Appelsínugul viðvörun
FréttirVeðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Vestfjörðum vegna vonskuveðurs á morgun, mánudag. Viðvörunin gildir allan daginn en einnig hafa gular viðvaranir verið gefnar út. Búist er við norðaustan byl með 18 til 25 metra á sekúndu vindi og snjókomu. Að sögn Veðurstofunnar má búast við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og samgöngutruflunum. Lesa meira
Einar sakar Gísla Martein um smættun Hrafns veðurfræðings – „Það fauk dálítið í mig í gærkvöldi“
FréttirEinar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sakar sjónvarpsmanninn Gísla Martein Baldursson um smættun í garð Hrafns Guðmundssonar kollega síns í þættinum Vikunni í gær. Mistökin hafi verið hjá tæknifólki RÚV. „Það fauk dálítið í mig í gærkvöldi að sjá þegar Gísli Marteinn Baldursson upphafði sjálfan sig á kostnað Hrafns Guðmundssonar,“ segir Einar í færslu á samfélagsmiðlum. En hann er mjög virkur þar Lesa meira
Skarpur sunnan hvellur í kortunum á morgun – Varað við tjóni
FréttirVeðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir fyrir mest allt landið vegna storms sem gengur yfir í nótt og fyrri part morgundagsins. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur lýsir lægðinni sem „Stórum sunnan.“ Búið er að gefa út gular viðvaranir fyrir allt landið að suðausturlandi undanskildu. Þær fyrstu taka gildi klukkan 4:00 í nótt og þær síðustu renna Lesa meira
Aflýsa og seinka flugferðum vegna óveðurs
FréttirFlugfélagið Play hefur tilkynnt um seinkanir á flugferðum vegna óveðursins sem gengur yfir í kvöld og á morgun. Spáð er suðaustan átt á Keflavíkurflugvelli þar sem búist er við vindhviðum allt að 60 hnútum. En hviðurnar mega ekki fara yfir 50 hnúta svo að hægt sé að koma farþegum örugglega um borð og frá borði. Lesa meira
Óveðrinu flýtt – Óvíst hvar mesta rigningin verður
FréttirVeðurstofan hefur flýtt gulu viðvöruninni sem á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Hún byrjar nú klukkan 19:00 í stað 21:00 en endar líka fyrr. Það er klukkan 3:00 í stað 6:00. „Við færðum hana fram. Við erum að hnika til tímasetningum samkvæmt nýjustu spám. Við áætlum að það dragi hratt úr og mesti vindurinn verði búinn eftir Lesa meira
Er vorið endanlega komið? Einar segir eftirtektarverðar breytingar fram undan næstu daga
FréttirEinar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir eftirtektarverðar breytingar fram undan í veðrinu hér á landi um miðjan þennan mánuð. „Hér við land er til skemmri tíma útlit fyrir heldur lækkandi frostmarkshæð, en fremur hægum vindi. Út vikuna snjóar annað veifið og lítillega á fjallvegum norðantil og sums staðar næturfrost eins og gengur. En á sunnudag/mánudag, þ.e. um Lesa meira
Leiðindaveður víða um land í dag
FréttirÞað verður leiðindaveður víða um land í dag. Norðan og norðvestanlands er spáð 18-28 m/s síðdegis. Einnig er búist við talsverðri rigningu um vestanvert landið. Á sunnan- og vestanverðu landinu er spáð rigningu en hægari vindi og þurru á Austurlandi fram á kvöld. Hiti verður á bilinu 4 til 11 stig síðdegis. Á morgun er spáð 13-20 m/s og Lesa meira
Kínverjar vilja auka getu sína til að stjórna veðrinu
PressanKínversk stjórnvöld ætla að auka fjárfestingar sínar í tækni sem er hægt að nota til að stýra veðrinu. Þetta á að gagnast landinu öllu. Markmiðið er að efla núverandi áætlun og getu landsins til að framleiða snjóa og rigningu. Markmiðið er að kerfið nái til að minnsta kosti 5,5 milljóna ferkílómetra fyrir árið 2025. Kínverska Lesa meira
Ekki hátt risið á Norðlendingum núna
Svarthöfði er glaður að sjá Norðurland allt grafast í fönn á meðan aðeins skæðadrífa er hér fyrir sunnan. Nú sér Svarthöfði fréttamyndir frá „höfuðstaðnum“ Akureyri á fésbókinni og gleðja þær mjög. Er engu líkara en að Norðurlandið sé að breytast í plánetuna Hoth. Svarthöfði hefur komið þangað. Það er ekki góður staður. Þannig er mál Lesa meira
Stefnir í þriggja til fimm gráðu hækkun meðalhita á jörðinni
PressanAllt stefnir í að árið sem senn er á enda verði það fjórða hlýjasta síðan mælingar hófust. Þetta segir WMO sem er veðurstofnun Sameinuðu þjóðanna. Stofnunin segir að það stefni í að meðalhitinn á jörðinn hækki um þrjár til fimm gráður á þessari öld. Þetta er miklu meiri hlýnun en þær tvær gráður sem flest Lesa meira