ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 4m/s N

Pétur Björgvin Þorsteinsson

#7891


Pétur Björgvin Þorsteinsson


Að byggja upp framtíð krefst bjartsýni og samstöðu
*Nýtt Ísland* byggir á nýjum grunni. Framtíð barna og barnabarna okkar felst í því að við þorum að taka samtalið og velta vöngum yfir því á hvers konar grunni sú framtíð skuli byggð. Mér þykir ljóst að mörg okkar hafa engan hug á því að fela fjórflokknum það hlutverk. Okkur þykir sem það kerfi sem hér var byggt upp hafi brugðist. Og ekki er laust við að mörg okkar þjáist af stofnanafælni og kerfisótta. Sú fælni og sá ótti á upptök sín í því að traustið sem við bárum til þeirra sem sátu við stýrið brást! *Að byggja upp framtíð krefst bjartsýni.* Þess vegna höfum við ekkert að gera með að kerfiskarlar, einn á fætur öðrum, stígi fram og tali niður til þeirra sem áttu hugmyndina að Stjórnlagaþingi, tali niður til þeirra sem létu sér detta það ,,fáránlega" í hug að bjóða sig fram til Stjórnlagaþings, tali niður til almennings, hann hafi nú svo lítið vit á málunum, sé vart skrifandi og geti þess vegna ekki kosið til Stjórnlagaþings ... *Að byggja upp framtíð krefst samstöðu almennings.* Þess vegna býð ég mig fram til Stjórnlagaþings. Ég er fullur bjartsýni á að Stjórnlagaþing geti verið upphaf að nýju Íslandi. Og jafnvel þó að við kæmumst að þeirri niðurstöðu að engu þyrfti að breyta í stjórnarskránni, þá væri hér nýtt upphaf á ferðinni. Því almenningur á Íslandi hefur aldrei áður fengið slíkt tækifæri til þess að ræða stjórnarskrá landsins. Hingað til höfum við aðeins verið í ,,að rétt upp hönd og krossa við" liðinu. Höfum getað sagt já eða nei. *Að byggja upp framtíð krefst faglegrar þekkingar.* Að sjálfsögðu hafa Sigurður Líndal og fleiri rétt fyrir sér þegar þeir skrifa og tala um að stjórnarskrá verði ekki samin nema að vandað sé til verksins og sú vinna sé fyrst og fremst unnin af þeim sem hafa faglega þekkingu til slíkrar vinnu. En þeir sem þannig tala verða að kyngja því að hér er ný og lýðræðisleg aðferð í uppsiglingu. Við viljum að faglegri þekkingu verði beitt til þess að orða það sem almenningur vill! Liðinn er sá tími að faglegri þekkingu sé beitt til þess að halda almenningi í skefjum! Nú er að taka slaginn. Framtíð Íslands veltur á því að við þorum að fara nýjar, ótroðnar slóðir. Þorum að leyfa mér og þér að ræða um stjórnarskrá. Stjórnarskráin sem við höfum er mannanna verk. Og eins og öll mannanna verk eru þau ekki fullkomin. Þess vegna er gott og rétt að skoða hverju við viljum breyta og hverju við viljum halda. Áfram Ísland.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?