Heilshugar
Mér þykir vænt um landið mitt. Unaðsreitirnir eru margir. Mínar bestu stundir átti ég sem ungur drengur við Ástjörn í Kelduhverfi. Fálkafell og Súlumýrar ofan Akureyrar urðu að mínum uppáhalds útivistarstað í samfélagi við aðra skáta. Í dag dvel ég oft í Skíðadal sem er mér paradís á jörðu.
*Íslensk náttúra er mér dýrmæt.* Ég held að áratugurinn sem ég dvaldi erlendis hafi haft þau áhrif á mig að þá fyrst lærði ég að meta þau djásn sem eru fólgin í íslenskri náttúru. Þá áttaði ég mig á því að það er ekki sjálfsagt að geta kropið niður við lækjarsprænu og fengið mér að drekka. Þá fyrst uppgötvaði ég að það er engan veginn sjálfsagt að vatnið í ánni sé til staðar alla daga ársins, hvað þá að hún renni áfram af krafti. Það var fyrst þá sem ég uppgötvaði að íslenskir sjómenn kunna til verka og skila af sér gæðavöru sem er engri lík. Og ég áttaði mig á því hve hátt dýravernd er skrifuð á Íslandi.
*Íslensk menning er mér dýrmæt.* Hin síðustu ár hef ég tekið virkan þátt í þvertrúarlegu starfi, rætt við og starfað með búddistum, moonistum, gyðingum, múslimum og fleirum á erlendum vettvangi. Þau hafa opnað augu mín fyrir þeirri fegurð sem býr í þeirra trú og þeirra menningarheimi, en þau hafa líka hjálpað mér til að átta mig á þeirri fegurð sem býr í minni eigin, lúthersku trú. Ég held að þegar ég var að alast upp hér heima á Fróni hafi íslenska kirkjan verið of sjálfsögð í huga mér. En í dag er hún engan veginn sjálfsögð en ég sannfærðari en nokkru sinni um það hve dýrmætt það er að eiga kirkju í sínum heimabæ. Íslensk menning er fjölbreytt, síung og síbreytileg. Það ber að hafa í huga og ég er viss um að hún heldur áfram að vera okkur dýrmæt.
*Nýir Íslendingar eru mér dýrmætir.* Ég er svo heppinn að hafa verið giftur konu í 18 ár sem er af erlendu bergi brotin. Hún hefur kennt mér margt og margan daginn hef ég þurft að þjálfa mig í fjölmenningarfærni. Minnug eru mér eigin hugsanir þegar ég dvaldi í fyrsta sinn á aðfangadagskvöldi hjá tengdaforeldrum mínum og fékk allt öðru vísi mat heldur en ég hafði vonast til. Það er ekki allt eins og heima hjá mömmu. Það er þessi þekking og reynsla sem á eftir að nýtast vel á Stjórnlagaþingi. Við þurfum að meta hvað það er sem er gott og hvað það er sem þarf að bæta - góð leið til þess er að spegla okkur í reynslu og menningu annarra þjóða.
*Stjórnarskráin er mér dýrmæt.* Ég vil ganga heilshugar til starfa fyrir Stjórnlagaþing. Ég kem þangað sem sá einstaklingur sem ég er: Með mína galla og með mína kosti. Í hjarta mér slær ást fyrir landið og fólkið sem í því býr. Í slíkri ást býr kraftur, þann kraft er ég tilbúinn til að virkja og vona að þú, kjósandi góður, setjir 7891 í efstu línuna á kjörseðlinum.






















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
