ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 4m/s N

Pétur Björgvin Þorsteinsson

#7891


Pétur Björgvin Þorsteinsson


Ný þjóð á gömlum merg
Það er í auðmýkt og með djúpri virðingu fyrir stjórnarskránni sem ég tek þau skref sem nauðsynlegt er að taka fyrir okkur sem bjóðum okkur fram til Stjórnlagaþings. Ég tel að þau sem hafa hingað til komið að því að gera stjórnarskrána að því vandaða verki sem hún er hafi gert sitt besta. Auðvitað vissu menn þá og vita menn nú að stjórnarskrá verður ekki frekar en önnur mannanna verk fullkomin. En við vitum að hana má bæta. Viðhorfin í þjóðfélaginu eru í dag að hluta til önnur en þau voru þá og ýmiss þekking hefur bæst í sarpinn sem gott og gilt er að nota sér við þá vinnu sem framundan er. Fjárhagskreppa sem var afleiðing siðlausra athafna og athafnaleysis hefur leitt af sér ímyndar- og sjálfsmyndarkreppu á Íslandi. Um leið og við viljum vera Íslendingar sem byggja með stolti á arfleifð formæðra og forfeðra okkar, þá þyrstir okkur í nýtt Ísland, þar sem við sameinumst um þau gildi sem eiga að móta þetta land. Í dag þykir okkur augljóst að auðlindir jarðar eru ekki ótakmarkaðar og við horfum með hryggð til þess að í allt of mörgum löndum þessa heims eru auðlindirnar í eigu nokkurra einstaklinga eða stórfyrirtækja en ekki í almenningseigu. Sorglegast er þegar að drykkjarvatnið er í eigu fyrirtækja eða auðugra einstaklinga en ekki í eigu almennings. Hér þurfum við að taka okkur taki og spyrja okkur hvort og hvernig við ætlum að koma orðum að því að auðlindir þessarar fallegu eyju sem við búum á, verði ætíð í almannaeigu. *Verkefni okkar allra er að leggja vinnu í að byggja upp nýja þjóð á gömlum merg.* Fyrsta skrefið hefur verið tekið með þeirri ákvörðun að halda Stjórnlagaþing. Næsta skref er sá kosningaferill sem nú stendur yfir. Þar erum við öll kölluð til verka, við þurfum að kynna okkur málin, ákveða hvaða fólk við viljum kjósa og mæta á kjörstað. Þriðja skrefið verður svo vinnan á Stjórnlagaþinginu sjálfu sem nýtist svo vonandi þeim sem munu taka þátt í því að stíga fjórða skrefið: Skrifa endanlegan texta nýrrar Stjórnarskrár sem verður svo lagður fyrir þjóðina.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?