Um frambjóðanda
Kosninganúmer:
4426
Bæjarfélag:
Reykjavík
Staða:
Tölvunarfræðingur
Fæðingarár:
1974
Menntun / starfsreynsla
BA sálfræði 1998 og M.Sc. tölvunarfræði frá HÍ 2003.
Unnið í upplýsingatækni frá 1998, þar á meðal fyrir OZ, Calidris, Tölvuheim og Símann. Er sérfræðingur á vefdeild Símans þar sem ég vinn við greiningu og hönnun á notendaviðmóti fyrir starfsmenn sem gagnast við afgreiðslu viðskiptavina.
Hvers vegna býð ég mig fram til stjórnlagaþings?
Stjórnarskrá færir völd frá þjóð í hendur stjórnvalda. Á Íslandi hefur traust þjóðar til stjórnvalda brostið og þetta umboð þarf að endurnýja með nýrri stjórnarskrá. Slíkt umboð fæst ekki nema þjóðin fylki sér á bak við það.
Ný stjórnarskrá ætti að setja stjórnvöldum nýjan ramma. Ég vil skilgreina hvernig mikilvægar ákvarðanir eru teknar og gera kröfu til stjórnvalda um að þau séu opin, starf þeirra gagnsætt og leyfi aðkomu þjóðarinnar. Sömu kröfu vil ég gera til stjórnlagaþings.
Stjórnarskrá lýsir einnig gildum sem þjóð vill aldrei gera málamiðlun um. Hlutverk mitt á stjórnlagaþingi er að gæta þess að stjórnarskráin endurspegli þessi grunngildi og lýsi þjóðfélaginu sem þjóðin vill búa í.