ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Hjörtur Hjartarson

#3304


Hjörtur Hjartarson


Um frambjóðanda

Kosninganúmer:

3304

Bæjarfélag:

107 Reykjavík

Staða:

Kynningarstjóri Staðlaráðs Íslands

Fæðingarár:

1960

Menntun / starfsreynsla

Próf í sagnfræði 2007, sveinspróf í rafeindavirkjun 1988, stúdent 1982. Dvaldi á Ítalíu 1983. Stundaði sjómennsku á námsárunum. Vann við tölvuviðgerðir 1987-1989. Verkefnastjóri hjá Iðntæknistofnun og forstöðumaður Verkstjórnarfræðslunnar 1990-1999. Kynningarstjóri Staðlaráðs Íslands frá 1999.

Hvers vegna býð ég mig fram til stjórnlagaþings?

Ég býð mig fram af því ég hef sannfæringu: Heilbrigt samfélag á Íslandi verður aðeins byggt upp með hreint borð og á nýjum grunni. Í því felst tvennt. Afdráttarlaust uppgjör við hrunið og að Íslendingar semji eigin stjórnarskrá. Stjórnlagaþingið er tækifæri sem við verðum að færa okkur í nyt. Ég ætla að leggja mitt af mörkum.

Raunveruleg þrískipting ríkisvalds, lýðræði og jafnrétti eru lykillinn að því að losa um skaðleg tök sérhagsmunaafla á íslensku samfélagi. Skýra þarf mörk framkvæmdarvalds og löggjafarvalds og auka áhrif kjósenda. Þjóðin þarf sjálf að geta gripið inn í mál á hverjum tíma og varið mikilvægustu hagsmuni sína.

Nóg er komið af ofríki peninga. Ég treysti fólkinu í landinu.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?