Liverpool tekur á móti Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld klukkan 18:45 og eru byrjunarliðin klár.
Liverpool sló Manchester City úr leik í 8-liða úrslitum keppninnar og þá vann Roma frækinn sigur á Barcelona.
Þá situr Liverpool í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Rómverjar eru í þriðja sæti í Serie A og því ljóst að það verður hart barist á Anfield í kvöld.
Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.
Liverpool: Karius, Alexander-Arnold, Lovren, Van Dijk, Robertson, Henderson, Milner, Oxlade-Chamberlain, Salah, Mane, Firmino
Roma: Alisson, Fazio, Manolas, Jesus, Florenzi, De Rossi, Strootman, Kolarov, Cengiz, Nainggolan, Dzeko