fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Guðni Th. fékk fyrstu treyjuna

Nýr búningur kynntur í gær – Verður notaður á HM í Rússlandi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 17. mars 2018 18:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta HM-keppnistreyja Íslands í knattspyrnu hefur litið dagsins ljós. Búningurinn er hannaður með þarfir og óskir leikmanna að leiðarljósi. Það er ERREA sem framleiðir búninginn í eigin verksmiðju í Evrópu. Búningurinn var kynntur við hátíðlega athöfn á Laugardalsvelli í gær, fimmtudag, en á svæðinu voru Heimir Hallgrímsson, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og fleiri gestir.

Ítalskur Íslandsvinur

Leitað var til hönnuða bæði íslenskra og erlendra og þá var einnig tekið tillit til óska landsliðsfólksins okkar, varðandi snið og efni. Margar skemmtilegar hugmyndir komu fram. Fyrir valinu varð hönnun ítalska íþróttavöruhönnuðarins Filippo Affani, þar sem hans hönnun þótti koma best út miðað við þarfir og óskir. Til gamans má geta þess að Filippo er mikill Íslandsvinur og flaggar til að mynda alltaf íslenska fánanum þegar landsliðið okkar spilar. Horft var til einkenna landsins og unnið með eldinn og ísinn. Treyjan á að endurspegla kraftinn sem býr innra með þjóðinni og áræðnina þrátt fyrir smæð. Innan á kraganum er að sjálfsögðu að finna möntru landsliðsins „Fyrir Ísland“, sem lýsir vel þeim hug sem leikmenn landsliðanna okkar bera þegar þeir ganga inn á keppnisvöllinn og leggja allt í sölurnar fyrir Ísland.

Forsetinn sáttur

Hr. Guðni Jóhannesson, forseti Íslands, tók við fyrstu treyjunni úr hendi formanns KSÍ og sagði við það tilefni: „Upp er runnin söguleg stund þegar ég tek nú við fyrstu treyjunni sem spilað verður í á fyrsta heimsmeistaramóti í knattspyrnu sem Ísland tekur þátt í. Það sem skiptir þó meira máli eru þeir sem verða í henni – við þurfum að finna stoltið og gleðina sem fylgir því að spila fyrir Ísland. Takk – treyjan lítur vel út – þar með er það ákveðið,“ sagði Guðni Th.

Formaður KSÍ spenntur

Errea og KSÍ hafa átt farsælu samstarfi að fagna lengi, enda hefur Errea verið einn helsti stuðningsaðili KSÍ í mörg ár eða allt frá árinu 2002. „Þetta er stund sem margir hafa beðið eftir, enda búningur, eða treyja, sem meirihluti þjóðarinnar mun líklega klæðast í sumar. Við erum gríðarlega sátt við útkomuna, enda var tekið tillit til allra okkar þarfa við hönnun treyjunnar og hún er flott,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Errea svarar eftirspurn þjóðarinnar

„Við erum gríðarlega stolt í dag þegar við afhendum fyrstu treyjurnar. Það er ekki einfalt að hanna og framleiða keppnistreyju landsliðs þar sem taka þarf tillit til óska og þarfa þeirra sem verða í henni. Treyjan á að endurspegla kraftinn sem býr innra með þjóðinni og áræðnina þrátt fyrir smæð,“ segir Þorvaldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Errea á Íslandi. „Eftir EM-ævintýrið árið 2016 erum við hjá Errea reynslunni ríkari og munum
leggja okkur fram um að svara eftirspurn þjóðarinnar og tökum þannig þátt og styðjum strákana,“ segir Þorvaldur.

Það er ljóst að treyjan verður umdeild til að byrja með eins og allar treyjur landsliðsins síðustu ár.
Umdeild Það er ljóst að treyjan verður umdeild til að byrja með eins og allar treyjur landsliðsins síðustu ár.
Eins og síðustu ár er það hvítur varabúningur sem Ísland notar.
Varabúningurinn Eins og síðustu ár er það hvítur varabúningur sem Ísland notar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals