fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Kristján Þór vann Einvígið á Nesinu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 8. ágúst 2017 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einvígið á Nesinu – Shoot out fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í gær. Mótið var fyrst haldið árið 1997 og var þetta því í 21. skipti sem mótið er haldið. Venju samkvæmt léku þeir kylfingar sem boðið var í mótið 9 holu höggleik í morgun. þar lék best af öllum Björgvin Sigurbergsson sem nú tók þátt í Einvíginu í 20. sinn en hann lék á 34 höggum, eða tveimur höggum undir pari vallarins.

Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn á 9. braut. Á 9. teignum stóðu eftir þeir Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja og fór svo að lokum að Kristján Þór sigraði eftir að þeir höfðu báðir fengið par á holuna og svo Einvígi (shoot-out) í lokin.

Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir þátttökuna. Mótið var að venju góðgerðarmót og afhenti Auður Þórarinsdóttir, frá DHL á Íslandi, Guðjóni Jóhannssyni frá Vinaliðaliðaverkefninu, eina milljón króna en verkefnið leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.

Nesklúbburinn vill þakka keppendum kærlega fyrir þátttökuna, áhorfendum, DHL á Íslandi, Stöð2sport og umfram allt þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem gerðu klúbbnum kleift að halda þetta mót.

  1. sæti: Kristján Þór Einarsson, GM
  2. sæti: Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS
  3. sæti: Birgir Björn Magnússon, GK
  4. sæti: Björgvin Sigurbergsson, GK
  5. sæti: Valdís Þóra Jónsdóttir, GL
  6. sæti: Björgvin Þorsteinsson, GA
  7. sæti: Ingvar Andri Magnússon, GR
  8. sæti: Úlfar Jónsson, GKG
  9. sæti: Oddur Óli Jónasson, NK
  10. sæti:Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
  11. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum