fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Sport

Fékk sjokk þegar honum var sagt að fara – Harður heimur fótboltans

Jón Daði ætlar sér langt hjá Reading – Pressa að vera Íslendingur

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 5. ágúst 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrstu vikurnar hjá Reading hafa verið flottar, ég er að venjast nýju liði, nýjum leikstíl, nýjum þjálfara og nýjum liðsfélögum. Það hefur tekið merkilega stuttan tíma fyrir mig að koma mér inn í hlutina, maður er bara spenntur fyrir framhaldinu,“ sagði landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson sem hefur um helgina leik með Reading í næstefstu deild Englands.

Championship-deildin hefst um helgina en Jón Daði og félagar heimsækja QPR í Lundúnum. Framherjinn gekk í raðir Reading í sumar frá Wolves þar sem hann stoppaði aðeins í eitt ár. Árið þar reyndist Jóni erfitt og vildi félagið losa sig við hann, það var þó ekki slæmt fyrir þennan öfluga Selfyssing því Reading er frábær klúbbur sem var með talsvert öflugra lið en Wolves á síðustu leiktíð.

„Fyrstu kynni af klúbbnum eru góð, þetta er stór klúbbur og síðasta tímabil hjá þeim var virkilega gott. Liðið var grátlega nálægt því að fara upp í úrvalsdeildina og hér er mikill metnaður, væntingarnar eru líka miklar fyrir næsta tímabil. Mér fannst þetta mjög spennandi, leikstíllinn er heillandi og þjálfarinn hefur reynslu af þessu. Heildarmyndin sem er hjá Reading er flott.“

Var hissa þegar Wolves vildi selja hann

Jón Daði mætti til æfinga hjá Wolves í upphafi sumars en þá höfðu orðið miklar breytingar hjá klúbbnum, nýr þjálfari og fjöldi nýrra leikmanna. Jón fékk þau skilaboð að hann mætti fara frá félaginu, það kom honum á óvart. „Það kom mér virkilega á óvart, þetta kom mér í opna skjöldu og var smá sjokk ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Ef maður horfir til baka þá eru rosalegar breytingar hjá Wolves, það eru 8–9 nýir leikmenn, nýtt þjálfarateymi og í raun allt nýtt. Breytingarnar eru svo miklar og ég var ekki eini leikmaðurinn sem fékk þessi skilaboð og fór, svona er fótboltinn og þetta er ekkert persónulegt. Maður má ekki taka þessu sem persónulegum hlut, áhuginn frá Reading kom svo strax upp og ég var afar spenntur fyrir því og það gekk fljótt í gegn.“

Fyrsta árið getur verið erfitt

Jón Daði kom til Englands frá Þýskalandi og það er þekkt stærð að það getur tekið tíma að venjast enskum fótbolta, mikil harka og í næstefstu deild Englands eru allir leikir erfiðir. „Þetta voru miklar breytingar fyrir mig, deildin er öðruvísi en ég hafði vanist. Það er mikil keyrsla og margir leikir, hver einasti leikur er erfiður. Það var flott að fá þetta fyrsta ár og læra af því, ég var mjög spenntur fyrir öðru tímabili með Wolves. Það var ekki í stöðunni og þá kom Reading inn í myndina og er markmiðið að komast fljótt inn í hlutina hérna og læra inn á þeirra leikstíl. Það er mikil harka í þessari deild, þetta er enskur fótbolti alveg 100 prósent. Mjög mikið af erfiðum leikjum og mismunandi lið, varnarlega eru liðin sterk og það er ekki mikið um færi. Maður lærir af þessu, maður hefur meiri reynslu. Núna setur maður sér markmið fyrir tímabilið því maður veit út í hvað er verið að fara. Það var aldrei spurning að fara í neitt annað félag þegar Reading kom upp, Ipswich hafði áhuga en Reading var spennandi eftir árangurinn í fyrra. Hér er hugarfar sigurvegarans og markið er sett hátt, sem leikmaður þá viltu svona umhverfi og maður lærir af því. Um leið og Reading kom upp þá var hugsunin bara „Hvar á ég að skrifa undir?“““

Stjóri sem veit hvað þarf til að ná árangri

Knattspyrnustjóri Reading er Hollendingurinn Jaap Stam. Sá var á sínum tíma einn besti varnarmaður í heimi fótboltans þegar hann lék með Manchester United og hann veit hvað þarf til að ná árangri. „Stam er virkilega flottur og hann er með flotta menn með sér, tveir aðstoðarþjálfarar eru með honum og þeir eru rosalega öflugir í að reyna bæta þig sem leikmann. Það er ekki oft þannig í fótboltanum í dag að þjálfarar ætli sér að bæta hvern einast leikmann, það eru allt of fáir þannig í dag. Þeir hafa í raun ekki tíma til að hjálpa þér því það snýst allt um úrslit og þjálfararnir hugsa um sitt starf. Þeir eru virkilega metnaðarfullir í að bæta einstaklinga sem bæta þá liðið, ég finn það strax hérna í byrjun að maður er að læra heilmargt. Það finnst mér mjög jákvætt. Stöðugleiki virðist einkenna Reading. Þeir treysta verkefninu sem þeir standa frammi fyrir. Hér vita menn að það geta komið slæmar tímar í bland við þá góðu, á síðustu leiktíð byrjaði liðið illa en menn gáfust ekki upp og hugsað er til lengri tíma. Síðan blómstraði liðið og var nálægt því að fara upp, þetta er klúbbur sem gefur þjálfurum og leikmönnum tíma. Það er mjög jákvætt, en sjaldgæft í dag. Markmiðið á þessu ári er að vera á meðal þeirra klúbba sem geta farið upp, menn setja stefnuna þangað. Liðið ætlar sér að komast upp en það vita allir sem horfa á þessa deild að það er virkilega erfitt. Deildin er svakalega erfið og er það ótrúlegur fjöldi af liðum sem telur sig geta farið upp og horfir til þess að ná árangri. Það segjast mörg lið ætla upp en reynslan sannar að það er ekkert gefins í Championship-deildinni.“

Pressa að vera Íslendingur þarna

Reading hefur mikla og góða reynslu af Íslendingum, Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru lykilmenn í Reading þegar liðinu gekk hvað best og áttu með félaginu góð ár í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Þór Sigurðsson var svo stjarna hjá félaginu í næstefstu deild og hefur Reading grætt háar fjárhæðir á Gylfa, félagið seldi hann fyrst til Þýskalands og síðan hefur hann farið á milli liða. „Það er rætt við mann um Íslendingana og hversu vel þeir hafa staðið sig hérna, maður finnur fyrir smá pressu að vera Íslendingur. Þeir tala mikið um Brynjar og Ívar Ingimarsson. Sérstaklega ræða þeir svo um Gylfa sem átti góðan tíma hérna, klúbburinn hefur góða reynslu af Íslendingum og maður finnur aukna hlýju frá fólkinu hérna vegna þess,“ sagði þessi geðþekki sóknarmaður að lokum í samtali við DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli

Pétur Theódór snýr aftur heim til Gróttu eftir erfið meiðsli
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Í gær

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar