Mörg lið í Pepsi-deild karla gera miklar kröfur – Hvaða þjálfarar missa starfið?
Það er farið að síga á seinni hlutann í íslensku knattspyrnusumri og línur eru farnar að skýrast í Pepsi-deild karla. Ljóst er að mörg lið munu ganga svekkt af velli þegar keppni lýkur í lok september. Deildin hefur verið afar fjörug það sem af er en þrátt fyrir það hefur mætingin á völlinn ekki verið góð. Nokkrir þjálfarar eiga á hættu að missa starfið enda kröfurnar um árangur hjá mörgum félögum miklar.
Stjarnan, KR, FH og Breiðablik munu að öllum líkindum horfa á þetta tímabil sem vonbrigði ef fram heldur sem horfir en Valur er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar og fátt virðist líklegt til að hindra að titillinn endi á Hlíðarenda og þar gætu því orðið breytingar hjá þessum félögum ef fram fer sem horfir.
Það þyrfti að stokka vel upp í leikmannahópi FH og líklega í þjálfarateyminu ef FH endaði í fjórða sæti deildarinnar eða neðar, það yrði til þess að FH yrði ekki í Evrópukeppni á næstu leiktíð sem myndi verða til þess að félagið yrði af miklum fjármunum. FH hefur verið í Evrópukeppni mörg ár í röð og fjármunirnir sem þar koma inn eru stór hluti af rekstri deildarinnar á ári hverju, ljóst er að Heimir Guðjónsson ætti í vandræðum með að halda starfinu ef FH tækist ekki að tryggja sér Evrópusæti. Heimir hefur stýrt FH frá haustinu 2007 með mögnuðum árangri. Tapið í bikarúrslitum hjá FH um síðustu helgi setti meiri pressu á Heimi um að eiga góðan endasprett í deildinni. FH getur enn orðið Íslandsmeistari og það myndi breyta hlutunum mikið.
KR er í sömu stöðu og FH, liðið á á hættu á að missa af Evrópusæti og það gæti kostað Willum Þór Þórsson starfið. KR-ingar eru þekktir fyrir kröfur og vilja sjá árangur innan vallar, ef Willum myndi mistakast að ná í Evrópusæti er ljóst að pressan yrði mikil og starfið í hættu. KR hefur spilað fínan fótbolta í sumar en í Vesturbænum spyrja menn ekki að því, þar er krafan alltaf mikil. Willum vann frábært starf á síðustu leiktíð þegar hann kom KR inn í Evrópukeppni en það telur lítið í ár. KR getur þó enn horft á þann möguleika að ná Evrópusæti og með möguleika á að endurnýja liðið talsvert fyrir næstu leiktíð gæti Willum haldið starfinu áfram.
Ef Stjörnunni mistekst að verða Íslandsmeistari á þessu tímabili gæti Stjarnan farið í það að skipta um þjálfara? Rúnar Páll vann kraftaverk með Stjörnuna árið 2014 þegar liðið vann sinn fyrsta og eina stóra titil í karlaknattspyrnu. Síðan þá hefur gengið verið langt undir væntingum, Stjarnan er með eitt allra dýrasta lið landsins en hefur þrátt fyrir það ekki barist um neinn titil á síðustu árum. Liðið á enn möguleika á að verða Íslandsmeistari og það myndi breyta stöðunni mikið, ef Stjörnunni tekst ekki að veita Val samkeppni á toppi deildarinnar út tímabilið er ljóst að menn í Garðabænum fara að hugsa málin. Þrjú ár í röð án þess að landa titli eða berjast um slíkan gætu talist mikil vonbrigði. Rúnar hefur fengið að smíða liðið algjörlega eftir sínu höfði, hann hefur losað sig við stóra og sterka karaktera og sett saman skemmtilegt lið. Það þarf að fara að skila árangri svo Rúnar haldist í starfi.
Það hefur mikið gengið á í Kópavogi í sumar, Arnar Grétarsson var rekinn í upphafi tímabils og voru margir sem furðuðu sig á þeirri ákvörðun. Arnar hafði sterk tengsl við félagið og hafði sýnt að í honum býr gríðarlega öflugur þjálfari, stjórn Breiðabliks taldi hins vegar að Arnar væri kominn á endastöð í Kópavoginum og því tóku menn þá ákvörðun að reka hann. Milos Milojevic var ráðinn í starfið en í Kópavoginum hefur Milos lítið gert til að sannfæra menn þar á bæ um að hann eigi að halda áfram með liðið. Milos hefur gengið erfiðlega að finna stöðugleika í Kópavoginum og þá hefur spilamennska liðsins á stórum köflum verið slök, í Kópavogi telja flestir að breytingar verði gerðar á þjálfarateyminu eftir tímabilið og að Milos verði ekki áfram. Breiðablik er félag sem hefur alla burði til að vera á meðal þeirra bestu á Íslandi en stjórnunarhættir utan vallar síðustu ár hafa orðið til þess að liðið er nú langt á eftir þeim bestu.
Þrátt fyrir að KA sé nýliði í deild þeirra bestu er ekki horft á liðið sem slíkt. KA er með dýrt lið og leikmenn sem vita hvað þarf til að ná árangri. Árangurinn í sumar hefur verið undir væntingum og á Akureyri gæti Srdjan Tufegdzic misst starfið ef illa fer, KA er enn í fallbaráttu og við það sætta menn sig ekki. KA ætlar sér stóra hluti í deild þeirra bestu á næstu árum og gæti gripið til þess að breyta um stjóra í brúnni ef liðið nær ekki góðum endaspretti. Gunnlaugur Jónsson gæti svo kallað þetta gott með ÍA að tímabilinu loknu, fátt kemur í veg fyrir að ÍA falli úr Pepsi-deildinni í haust. Gunnlaugur hefur unnið ágætt starf á Akranesi en ef liðið fer niður er ljóst að menn munu íhuga að gera breytingar.