viðtal sem Arnar Daði Arnarsson fréttamaður á Fótbolti.net tók við Gísla Gíslason stjórnarmann í KSÍ hefur verið gagnrýnt af femínistum. Gísli er faðir landsliðskonunnar Hallberu Guðnýjar Gísladóttur sem var hluti af landsliðshópnum sem tók þátt í Evrópumótinu í knattspyrnu.
Gísli svaraði öllum spurningum Arnars og hrósaði meðal annars stelpunum okkar fyrir frammistöðu sína sem og áhorfendur. Í lok samtalsins var Gísli spurður:
Þarf ekki að fara koma Hallberu út?
Gísli svaraði
„Það er verkefni. Nú er hún komin á þann aldur að hún þarf að finna sér fallegan, góðan, sætan ríkan mann eins og mig.“
Hefur spurning fjölmiðlamannsins vakið athygli og er meðal annars gagnrýnd af femínistum. Arnar Snæberg tjáir sig á Femínistaspjallinu og segir:
„Ef þetta væri mamma leikmanns í karlalandsliðinu fengi hún aldrei svona spurningu, hún myndi aldrei svara henni á þennan hátt og því yrði aldrei slegið upp í fyrirsögn. Pathetic.“