fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Er Albert næsta stjarna Íslands? Sjáðu tilþrifin

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 23. október 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Guðmundsson, fyrirliði íslenska U21 árs landsliðsins, hefur bankað á dyrnar hjá aðalliði PSV Eindhoven í Hollandi og um helgina fiskaði hann víti í sigurleik gegn Heracles eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Albert, sem er fæddur árið 1997, hefur æft með aðalliði PSV í vetur en hefur þó oftar en ekki þurft að sætta sig við að koma inn á sem varamaður undir lok leikja.

Af þeirri ástæðu hefur hann spilað með varaliði PSV, PSV II, í næst efstu deild Hollands en Albert fór á kostum í þeirri deild í fyrra þegar hann skoraði 18 mörk í 34 leikjum. Það sem af er þessu tímabili hefur hann skorað þrjú mörk í þremur leikjum og líða að meðaltali á 80 mínútur á milli marka.

Hér að neðan má sjá svipmyndir af Alberti í leikjum PSV á tímabilinu, en YouTube-síðan PSV Edits tók saman. Myndbandið er ekki ýkja langt en á því má þó glögglega sjá hversu mikla hæfileika Albert hefur.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=iFNojIYDGiY&w=560&h=315]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Beitir Ólafsson úr KR í HK

Beitir Ólafsson úr KR í HK
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Í gær

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
433Sport
Í gær

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti