Ellefu manna byrjunarlið leikmanna sem senn verða samningslausir
Fjölmargir leikreyndir leikmenn verða samningslausir í sumar sem þýðir að áhugasöm félagslið geta farið að gera hosur sínar grænar nú þegar janúar er genginn í garð. Breska blaðið Mirror setti saman ellefu manna byrjunarlið samningslausra leikmanna. Þó að meðalaldur liðsins sé tiltölulega hár leynast þarna gullmolar sem gætu nýst hvaða liði sem er.
Aldur: 35 ára
Félagslið: Porto
Landsleikir/mörk: 167/0
Casillas er vissulega kominn af sínu léttasta skeiði en hann er samt sem áður frábær markvörður. Ótrúlega leikreyndur leikmaður sem á hátt í 800 leiki að baki fyrir Real Madrid, Porto og spænska landsliðið. Hefur unnið alla titla sem hægt er að vinna.
Aldur: 33 ára
Félagslið: Manchester City
Landsleikir/mörk: 65/0
Bacary Sagna er öflugur bakvörður sem enn spilar reglulega fyrir eitt besta félagslið Englands, Manchester City. Og þar áður var hann lykilmaður í vörn Arsenal. Það segir ýmislegt um gæði hans. Sagna er þar að auki reynslumikill leikmaður sem hefur unnið fjölda titla.
Aldur: 36 ára
Félagslið: Chelsea
Landsleikir/mörk: 78/6
John Terry fær ekki mörg tækifæri hjá Chelsea þessa dagana enda er liðið að spila gríðarlega vel um þessar mundir. Þó að hægst hafi á Terry er hann magnaður leiðtogi innan vallar sem utan. Verður samningslaus í sumar og ólíklegt að hann verði áfram á Brúnni.
Aldur: 33 ára
Félagslið: Real Madrid
Landsleikir/mörk: 78/4
Pepe er 33 ára sem er enginn aldur fyrir leikmann sem hugsar vel um heilsuna. Þessi magnaði varnarmaður hefur unnið allt sem hægt er að vinna en hefur á þessu tímabili þurft að sætta sig við bekkjarsetu hjá Real Madrid. Pepe er leikmaður sem flest, ef ekki öll, knattspyrnulið gætu notað.
Aldur: 31 árs
Félagslið: Manchester City
Landsleikir/mörk: 20/0
Franski bakvörðurinn spilar reglulega fyrir Pep Guardiola hjá City og þótt hann geri hlutina aldrei með stæl gerir hann þá vel og skilar sínu. Clichy er samningslaus eftir tæplega sex ára veru hjá City og óvíst er hvað tekur við hjá honum.
Aldur: 33 ára
Félagslið: Manchester City
Landsleikir/mörk: 102/19
Fílabeinsstrendingurinn vann sig aftur inn í lið City eftir að hafa verið úti í kuldanum framan af tímabili. Nær öruggt er að Toure fái ekki nýjan samning hjá City en þessi 33 ára leikmaður hefur sýnt það að undanförnu að hann á nóg eftir á tanknum.
Aldur: 27 ára
Félagslið: Zenit
Landsleikir/mörk: 76/8
Belginn hárprúði hefur verið á mála hjá Zenit undanfarin ár en ku vera farið að leiðast lífið í Rússlandi. Hann mun yfirgefa Zenit í sumar en spurningin er aðeins hvert hann fer. Þar sem hann er leikreyndur og á besta aldri er ljóst að barist verður um undirskrift hans. Nýlegar fréttir gáfu til kynna að Witsel væri við það að semja við Tianjin Quanjian í Kína og myndi semja frekar við kínverska milljarðaliðið en stórlið Juventus á Ítalíu. Ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum þó.
Aldur: 32 ára
Félagslið: Bayern München
Landsleikir/mörk: 89/31
Einn allra besti vængmaður síðasta áratugar eða svo er með lausan samning í sumar. Forráðamenn Bayern eru sagðir vilja bjóða honum eins árs samning en Robben vill helst lengri samning. Frábær leikmaður sem gæti nýst hvaða liði sem er, stóru eða smáu.
Aldur: 32 ára
Félagslið: Arsenal
Landsleikir/mörk: 77/14
Þessi fjölhæfi miðjumaður hefur fengið sinn skerf af meiðslum á undanförnum árum og raunar verið frá keppni síðustu vikurnar vegna meiðsla. Þegar Cazorla er heill standast honum þó fáir snúning. Ólíklegt þykir að Spánverjinn verði áfram hjá Arsenal.
Aldur: 31 árs
Félagslið: Manchester City
Landsleikir/mörk: 35/3
Þessi skotfljóti kantmaður er með lausan samning í sumar og óvíst hvað bíður hans. Navas er öflugur vængmaður sem þó hefur aldrei tekist að blómstra almennilega hjá City. Hver veit hvort honum takist það hjá öðru liði?
Aldur: 32 ára
Félagslið: Atletico Madrid
Landsleikir/mörk: 110/38
Torres er vissulega kominn af léttasta skeiði en samt leikmaður sem gæti vel nýst mörgum liðum. Hefur verið í aukahlutverki hjá uppeldisliði sínu, Atletico Madrid, undanfarin ár en talið er ólíklegt að Torres verði áfram í Madrid.
Aðrir leikmenn …
… Zlatan Ibrahimovic er með lausan samning í sumar en það eru taldar 99% líkur á að hann verði áfram á Old Trafford. Antonio Valencia og Michael Carrick eru einnig með lausan samning í sumar en allar líkur eru á að þeir verði áfram. Pablo Zabaleta, Branislav Ivanovic, Per Mertesacker og Saido Berahino eru einnig með lausan samning og fá þeir heiðurstilnefningu í þessari úttekt.