fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Sport

Björn býður sig fram til formanns KSÍ

Segir mikilvægt að styrkja ímynd KSÍ

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. janúar 2017 16:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Einarsson, formaður Knattspyrnufélagsins Víkings, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi KSÍ 11. febrúar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Björn sendi frá sér í dag.

Björn hefur mikla og víðtæka reynslu af stjórnarstörfum í íþrótta- og knattspyrnuhreyfingunni. Hann var formaður knattspyrnudeildar Víkings 2007-2013 og formaður aðalstjórnar Víkings frá 2013 auk þess sem hann hefur setið í stjórn Íslensks toppfótbolta (ÍTF). Björn hefur auk þess 20 ára reynslu af að stýra fyrirtækjum bæði hér á landi sem og erlendis. Hann hefur verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá árinu 2006. Björn mun ekki þiggja laun sem formaður KSÍ.

,,Ég hef fengið mikla hvatningu úr knattspyrnuhreyfingunni undanfarnar vikur til að bjóða mig fram til formanns KSÍ. Þetta er ákvörðun sem ég tek að mjög vel yfirlögðu ráði. Margt gott hefur áunnist innan sambandsins síðastliðinn áratug en engu að síður er skýr krafa um breytta og öflugri stjórnsýslu innan KSÍ sem mikilvægt er að hlusta á. Ég tel mig koma með mikla reynslu og þekkingu úr knattspyrnuhreyfingunni og atvinnulífinu til að vinna að þessum breytingum með jákvæðum hætti og samvinnu allra aðila.“ segir Björn.

Björn segist telja sig koma með mikla reynslu og þekkingu úr knattspyrnuhreyfingunni og atvinnulífinu til að vinna að þessum breytingum með jákvæðum hætti og samvinnu allra aðila. Hann segir mjög mikilvægt er að styrkja ímynd KSÍ gagnvart samfélaginu, aðildarfélögunum og samstarfsaðilum, innlendum sem erlendum.

„Það er mikill mannauður og reynsla innan stjórnar og á skrifstofu KSÍ sem nýta þarf vel og vandlega. Efla þarf sjálfstæði skrifstofu KSÍ og styrkja hana enn betur til að takast á við daglegan rekstur. Ennfremur er mikilvægt í mínum huga að tryggja þarf skýrt jafnvægi milli stjórnar KSÍ og skrifstofu sambandsins. Það er mikil og góð vinna unnin í grasrótinni og á meðal aðildarfélaga KSÍ,“ segir í yfirlýsingunni. Ennfremur segir að tryggja þurfi öflugri brú á milli KSÍ og aðildarfélaganna sem hafa margar og ólíkar þarfir.

„Ég mun beita mér fyrir því að að efla umgjörð og vinnuramma landshlutafulltrúa sambandsins og styrkja þannig tengingu landsbyggðarinnar við KSÍ. Ég mun leggja mig allan fram og vinna af krafti og heilindum fyrir öll aðildarfélög KSÍ og íslenska knattspyrnu. Tækifærin eru sannarlega til staðar í þessum frábæra meðbyr sem íslensku landsliðin, bæði kvenna og karla, hafa búið til fyrir okkur,“ segir Björn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Kemur vel til greina að fyrrum stjóri United taki við Bayern – Einum færri á blaði eftir fréttir dagsins

Kemur vel til greina að fyrrum stjóri United taki við Bayern – Einum færri á blaði eftir fréttir dagsins
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Telja að VAR hafi teiknað línuna á vitlausan stað til að bjarga United frá áfalli – Sjáðu myndina

Telja að VAR hafi teiknað línuna á vitlausan stað til að bjarga United frá áfalli – Sjáðu myndina
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta