Sjálfsmörk geta verið glæsileg en flest eiga þau það þó sameiginlegt að vera slysaleg. Leikmaður tyrknesks neðri deildar liðs skoraði þó að líkindum eitt slysalegasta sjálfsmark tímabilsins í leik á dögunum.
Leikmaðurinn sem um ræðir spilar með liði sem heitir Gaziantep Buyuksehir Belediyespor. Liðið fékk dæmda á sig vítaspyrnu á dögunum en markvörður liðsins varði heldur slaka spyrnu. Honum var að sjálfsögðu ákaft fagnað og brá umræddur leikmaður á það ráð að knúsa markmanninn. Allt fór í handaskol í kjölfarið og niðurstaðan eitt slysalegasta sjálfsmark ársins.
Myndbandið má sjá hér að neðan: