fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Sport

Fær ekki tækifæri með landsliðinu en gefst ekki upp

Matthías Vilhjálmsson er ánægður með samkeppnina frá Nicklas Bendtner

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 17. apríl 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matthías Vilhjálmsson er þrítugur knattspyrnumaður sem sleit barnsskónum á Vesturlandi áður en hann hélt ungur á höfuðborgarsvæðið og gekk í raðir FH. Matthías var einn allra besti leikmaðurinn sem Pepsi-deildin hefur fengið að fylgjast með en árið 2012 hélt hann svo til Noregs og lék með Start til ársins 2015. Þá fór hann til Rosenborg sem er sögufrægasta lið Noregs og nú, eftir tvö tímabil þar, hefur Matthías unnið deildina í bæði skiptin.

Þrátt fyrir að spila með besta liði Norðurlandanna og gera það vel fær Matthías ekki nein tækifæri með íslenska landsliðinu. Í þessu viðtali ræðir hann lífið í Noregi og hvernig hann tekur mótlætinu.

„Við erum búnir að fara vel af stað á þessu tímabili og það var sterkt að gefa tóninn strax í fyrsta leik um meistara meistaranna gegn Brann og klára það. Deildin hefur svo farið vel af stað, vonandi eigum við bara eftir að gefa vel í. Við misstum auðvitað mjög mikilvæga leikmenn úr liðinu eins og Hólmar og norskan landsliðsmann sem var bakvörður hjá okkur. VIð fengum fimm eða sex nýja leikmenn og erum að púsla þessu enn betur saman. Þetta lítur vel út en það er of snemmt að segja núna, við erum réttri leið,“ segir Matthías.

Erfitt andlega að byrja ekki alla leiki:

Hjá Rosenborg er gríðarleg samkeppni um stöður og breiddin í liðinu er afar mikil. Sökum þess er þjálfarinn, Kåre Ingebrigtsen, mikið fyrir það að spila ekki alltaf sama liðinu fram. Matthías var til að mynda á bekknum í fyrsta leik og kom ekkert við sögu, en í öðrum leiknum byrjaði hann og skoraði. Hann segir að svona geti pirrað menn
„Ég var virkilega pirraður að fá ekkert að spila í fyrsta leiknum en þjálfarinn er með þá hugmyndafræði að dreifa álaginu á milli leikmanna. Hann er voðalega hrifinn af þessu, við leikum marga leiki og hann vill hafa menn ferska. Það var gott fyrir mig að koma inn og gera vel, við spilum marga leiki ef þú tekur saman deildina og bikarinn og svo vonandi mun okkur vegna vel Í Evrópu. Þetta gætu því orðið allt að 50 leikir og maður skilur vel að hann vilji hafa alla ferska.
Það er ekkert sérstakt fyrir andlegu hliðina að vera leikmaður í svona kerfi eins og þjálfarinn vill hafa. Maður á kannski mjög góðan leik og þá er pirrandi að vera settur á bekkinn. Það er ekkert sem maður getur gert í þessu, við erum með mjög góðan hóp. Þetta eru 18–20 leikmenn sem geta allir byrjað leiki og það er forskot sem við höfum á hin liðin í Danmörku. Við erum með mikla breidd sem skilar vonandi sínu.“

„Rosenborg er svipað Liverpool, menn tala bara um fortíðina.“

Rosenborg er eins og Liverpool:

Rosenborg er sögufrægt félag og hér á árum áður átti liðið öruggt sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, félagið stefnir þangað aftur og Matthías finnur fyrir þeirri pressu. „Markmið okkar er að vinna deildina og bikar eins og síðustu ár, aðalmarkmið allra er samt að komast í riðlakeppni Evrópu. Það er helsta markmiðið og til að stuðningsmennirnir telji þetta gott tímabil þá þurfum við að fara í riðlakeppni í Evrópu. Við vorum svo nálægt því í fyrra að fara lengra í Evrópu og það er stefnan í ár. Fyrsta markmiðið er að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en til vara er það Evrópudeildin. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur, þar koma fleiri leikir og menn fá að spila meira.
Ég finn það að hérna var Meistaradeildin á hverju ári í gamla daga því það er það eina sem stuðningsmennir tala um þegar maður hittir þá. Rosenborg er svipað Liverpool, menn tala bara um fortíðina. Ég þekki það sem harður stuðningsmaður Liverpool en fótboltinn í dag lifir ekki á því. Í dag er miklu meiri samkeppni í fótboltanum, það eru komin inn miklu fleiri lönd sem hafa miklu meira fjármagn. Það er erfiðara að ná árangri í Evrópu.“

Lifir af án samherja frá Íslandi:

Í vetur seldi Rosenborg tvo íslenska samherja Matthíasar og því er hann einn eftir af þeim, Hólmar Örn Eyjólfsson var seldur til Ísrael og Guðmundur Þórarinsson fór til Svíþjóðar. Þrátt fyrir það líður Matthíasi vel og það er kominn smá Norðmaður í okkar mann.

„Það er bara ágætt þrátt fyrir að ég sé einn hérna eftir af þeim, ég var mjög góður vinur Hólmars og Gumma. Maður er ýmsu vanur í fótboltanum, menn koma og fara. Auðvitað væri skemmtilegra að hafa einn Íslending með sér en ég á marga góða félaga og maður nýtir bara Skype núna til að heyra í mönnum. Ég er auðvitað búinn að vera í sex ár í Noregi og það er smá Norðmaður kominn í mig, mér líður ótrúlega vel hérna og umhverfið er notalegt. Innst inni er maður samt alltaf harður Íslendingur.“

Glaumgosi fótboltans nýr liðsfélagi:

Nicklas Bendnter, framherjinn frá Danmörku, varð liðsfélagi Matthíasar á dögunum en hann er heimsfrægur. Bendtner hefur ótrúlega hæfileika en vesen á honum innan sem utan vallar er ástæða þess að hann spilar nú í Noregi. Matthías ber honum söguna vel og segir hann frábæran leikmann. „Hann er ótrúlega fínn, algjör toppnáungi í raun. Hann gefur mikið af sér til leikmanna og er mjög skemmtilegur. Hann er með rosaleg gæði og maður sér það bara á æfingum þegar hann sendir boltann, móttaka og hvernig hann skilar honum frá sér er fyrsta flokks. Hann 196 sentimetrar á hæð og er búinn að vera í Arsenal, Juventus og Wolfsburg, hann hefur mátt þola gagnrýni á sínum ferli en ég er bara ánægður með að fá hann hingað og að hann hafi valið Rosenborg. Ég þekki ekki alveg sögu hans úr enskum blöðum en hann er ákveðin goðsögn í boltanum. Eins og einn danskur vinur sagði við mig, hann er bara einn frægasta manneskjan í Danmörku. Það er konungsfjölskyldan og svo er það Lord Bendnter, hann var undrabarn og varð strax mjög frægur. Ég er mjög spenntur yfir því að hann hafi valið Rosenborg að hann hafi viljað koma hingað til að koma ferlinum af stað.“

Finnst hann eiga skilið tækifæri með landsliðinu

Matthías lék síðast landsleik í upphafi árs 2016 en hann á að baki 15 A-landsleiki fyrir Ísland. Aðeins tveir af þeim eru keppnisleikir en hinir hafa verið æfingarleikir. Heimir Hallgrímsson hefur ekki valið Matthías undanfarið og yfir því er Matthías svekktur. „Ég veit í rauninni ekki alveg hvað ég á að segja, ég er svekktur að hafa ekki verið valinn. Ég held að flestir leikmenn sem telja sig vera að gera góða hluti og að spila vel í sterku liði séu svekktir ef þeir komast ekki í landsliðið. Ef þú ert ekki svekktur með það þá er eitthvað að, það er voðalega lítið sem ég get gert í stöðunni. Ég reyni að standa mig í hverjum leik með Rosenborg en hingað til hefur Heimir talið að aðrir leikmenn séu betri en ég í þær stöður sem hann hefur viljað fá inn menn. Það verður að hafa það, ég hef verið mjög sáttur við mína frammistöðu í Noregi. Ég er í líklega besta liðinu á Norðurlöndunum og við erum alltaf að vinna titla, það er voða lítið meira sem ég get gert en auðvitað er maður svekktur.

Án þess að ætla að vera með einhverjar yfirlýsingar þá finnst mér ég eiga skilið að fá tækifæri. Ef þjálfaranum finnst það ekki þá fer það ekkert lengra, ég sá að Heimir talaði um að verkefni í upphafi árs eins og í Kína um daginn væru mjög mikilvæg fyrir leikmenn til að sanna sig. Rosenborg gaf mér ekki leyfi til að fara í það verkefni núna, það kom fyrirspurn hingað en Rosenborg vildi fá mig með í æfingaferð. Ég lýsti yfir áhuga á því að fara en gat ekkert meira gert, við vorum að fara að spila leiki við sterk lið og þjálfarinn taldi best að ég væri með þar.

Það er mjög langt síðan ég var síðast í landsliðinu en maður á aldrei að gefast upp. Ég reyni bara að halda áfram að standa mig vel og sé svo hvað gerist. Ég tel mig eiga mörg ár eftir í boltanum, ég er ekki leikmaður sem treystir á hraða. Ég hugsa mjög vel um mig og vonandi skilar það sér í mörgum góðum árum til viðbótar og vonandi kemur kallið í landsliðið einn daginn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Frank Lampard hafnaði áhugaverðu starfi eftir viðræður

Frank Lampard hafnaði áhugaverðu starfi eftir viðræður
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Cole Palmer slátraði slöku Everton liði

Cole Palmer slátraði slöku Everton liði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ofurtölvan hefur tekið stokkinn og lesið í hann eftir vendingar helgarinnar

Ofurtölvan hefur tekið stokkinn og lesið í hann eftir vendingar helgarinnar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Jói Kalli framlengir við KSÍ og mun áfram aðstoða Hareide

Jói Kalli framlengir við KSÍ og mun áfram aðstoða Hareide
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Garnacho tekinn á teppið af Ten Hag og búið að leysa málið

Garnacho tekinn á teppið af Ten Hag og búið að leysa málið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mikil gleðitíðindi fyrir Víking

Mikil gleðitíðindi fyrir Víking
433Sport
Í gær

Ummæli Mourinho um hetju helgarinnar eldast ansi vel

Ummæli Mourinho um hetju helgarinnar eldast ansi vel