fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Sport

Snillingurinn sem hvergi er húsum hæfur

Hatem Ben Arfa enn á ný að klúðra gullnu tækifæri – Kominn í kuldann í París

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 25. september 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðeins tæpum þremur mánuðum eftir að draumur hans rættist og hann skrifaði undir samning hjá stórliði Paris-Saint Germain er breyski snillingurinn Hatem Ben Arfa kominn í vandræði. Hann náði aðeins að leika þrjá deildarleiki með liðinu sem hann dreymdi um að leika með sem ungur drengur í Frakklandi, en síðustu þrjá leiki hefur hann mátt horfa á úr stúkunni.

Unai Emery, knattspyrnustjóri PSG, hefur gagnrýnt hugarfar, framlag og frammistöðu Bens Arfa innan vallar sem utan, leynt og ljóst að undanförnu og sett hann út í kuldann. Með þeim skilaboðum meðal annars að Ben Arfa sé „enginn Messi“ og „geti ekki unnið leiki upp á sitt einsdæmi,“ að því er hið virta franska sportdagblað L‘Equipe greinir frá innan úr herbúðum PSG. Ben Arfa virtist loks hafa náð þeim hæðum sem búist hafði verið við af honum síðan hann var táningur með Nice á síðasta tímabili. En nú virðist hann vera að klúðra gullnu tækifæri – og ekki í fyrsta skipti.

Unai Emery, stjóri PSG, hefur gagnrýnt Ben Arfa og krafið hann um að vera meiri liðsmaður. Líklega ekki fyrsti stjórinn sem það gerir.
Látinn heyra það Unai Emery, stjóri PSG, hefur gagnrýnt Ben Arfa og krafið hann um að vera meiri liðsmaður. Líklega ekki fyrsti stjórinn sem það gerir.

Mynd: EPA

15 ára undrabarn

Ben Arfa hóf atvinnumannsferil sinn hjá Lyon í Frakklandi en frá því hann var 15 ára gamall hafði verið talað um hann sem undrabarn og stórstjörnu framtíðarinnar í heimalandinu. Óumdeilt hefur verið alla tíð að Ben Arfa sé gæddur einstökum hæfileikum og þegar hann er í stuði þá standast fáir honum snúning á vellinum. En hugarfar hans og framkoma hefur oftar en ekki eitrað samband hans við liðsfélaga og þjálfara.

Áður en hann gekk til liðs við Lyon hafði hann sem unglingur verið valinn til að sækja hina virtu Clairefontaine knattspyrnuakademíu þar sem honum lenti meðal annars saman við annan ungan og upprennandi leikmann, Abou Diaby, sem síðar átti eftir að leika með Arsenal.

Ungstirni í átökum

Orðstír Bens Arfa skánaði talsvert hjá Lyon þar sem hann var umkringdur öðrum ungum og efnilegum leikmönnum á borð við Michael Essien, Florent Malouda og Karim Benzema.

Fjögur ár hans hjá Lyon voru stormasöm og sögur af ósætti milli Benzema og Bens Arfa skutu reglulega upp kollinum. Ben Arfa, þá 21 árs og nýkjörinn besti ungi leikmaður deildarinnar, skrifaði undir nýjan samning við Lyon árið 2008 en ekki leið á löngu þar til allt fór í háa loft. Ben Arfa mun hafa lent í slagsmálum við Sebastian Squillaci á æfingu og farið var að orða hann við önnur lið.

Ben Arfa var einn fjölmargra efnilegra leikmanna í frábæru liði Lyon sem einokaði franska meistaratitilinn eftir aldamót.
Ungstirni hjá Lyon Ben Arfa var einn fjölmargra efnilegra leikmanna í frábæru liði Lyon sem einokaði franska meistaratitilinn eftir aldamót.

Mynd: EPA

Sumarið 2008 var hann orðaður við m.a. Arsenal, Manchester United og Real Madrid en einnig var hávær orðrómur um að hann væri eftirsóttur af keppinautunum í Marseille sem virtust vera að landa honum. En Lyon hætti við allt saman. Því tók Ben Arfa illa. Hann mætti í viðtal og lýsti því yfir að hann væri búinn að skrifa undir hjá Marseille og myndi ekki snúa aftur til Lyon á undirbúningstímabilinu. Í júlíbyrjun 2008, eftir að samtök knattspyrnumanna í Frakklandi höfðu blandað sér í deiluna, var síðan tilkynnt um kaup Marseille á Ben Arfa fyrir 12 milljónir evra.

Slagsmál og enskt flopp

Eftir vænlega byrjun á ferlinum hjá Marseille, endaði þriggja ára dvöl hans þar með álíka látum. Hann lenti í átökum við liðsfélaga á ný á æfingasvæðinu, að þessu sinni Modeste M‘Bami, hann neitaði að hita upp og koma inn á sem varamaður í tapleik gegn PSG, skrópaði á æfingar og lenti í útistöðum við þjálfarann. Við tók dvöl hjá Newcastle. Þar líkt og áður sýndi Ben Arfa oft og tíðum glæsileg tilþrif og snilld sína næstu fjögur tímabil. En ferill hans þar fór í vaskinn sömuleiðis. Í september 2014 lánaði Newcastle hann til Hull City út tímabilið þar sem hann lék aðeins átta leiki. Í desember lét Ben Arfa sig hverfa af landi brott án þess að láta nokkurn mann hjá Hull vita. Steve Bruce, stjóri liðsins, viðurkenndi að hann vissi ekkert hvar leikmaðurinn væri niðurkominn. Í janúar 2015 var Ben Arfa leystur undan samningi sínum hjá Newcastle.

Mátti ekki spila

Nokkrum dögum síðar birtist hinn áður týndi Ben Arfa í Frakklandi þar sem hann hafði skrifað undir samning við Nice.
„Jafnvel þó að Real Madrid hefði haft samband þá hefði ég samt komið hingað. Ég var búinn að ákveða mig,“ lét Ben Arfa hafa eftir sér. Kvaðst hann njóta trausts þarna hjá fólki sem dæmdi hann ekki eins og aðrir. Vandamálið var hins vegar að Ben Arfa mátti ekki leika með Nice það sem eftir lifði tímabils, því hann hafði þegar leikið með Newcastle og Hull á einu og sama tímabilinu. Í febrúar var samningi hans við Nice rift en félagið samdi aftur við hann um sumarið.

Ben Arfa lék á als oddi hjá Nice og átti sitt besta tímabil á ferlinum.
Blómstraði í Nice Ben Arfa lék á als oddi hjá Nice og átti sitt besta tímabil á ferlinum.

Mynd: EPA

Blómstraði hjá Nice

Hjá Nice átti Ben Arfa óvænt sitt besta tímabil á ferlinum og var hann einn besti leikmaður Ligue 1-deildarinnar. Hann blómstraði undir stjórn Claude Puel, skoraði 18 mörk á tímabilinu, þar af 17 í deild, og hjálpaði liðinu að tryggja sér 4. sætið. Ben Arfa sýndi loks vikulega hversu góður hann var í fótbolta og að hann væri leikmaðurinn sem svo margir töldu að hann gæti orðið sem unglingur. Hann vann sér sæti í franska landsliðinu á ný, þar sem hann hefur aldrei átt fast sæti, og allt virtist í blóma.

Draumabyrjun varð að martröð

Hinn 29 ára gamli Ben Arfa fór síðan á frjálsri sölu til Paris-Saint Germain síðastliðið sumar en hann hafði verið eftirsóttur af fjölmörgum liðum í Evrópu. Ben Arfa hafði alltaf dreymt að spila fyrir PSG og hóf ferilinn með því að skora gegn sínum gömlu félögum í Lyon, í Trophée des Champions, leiknum sem vanalega er á milli deildar og bikarmeistara í upphafi tímabilsins í Frakklandi. Síðan þá hefur Ben Arfa aðeins komið við sögu í þremur deildarleikjum, en er kominn út í kuldann á ný. Draumurinn er orðinn að martröð og ljóst að hann þarf að leggja sig fram við að vinna stjórann, Unai Emery, aftur á sitt band. En miðað við sögu hans búast fæstir við því að Ben Arfa gefi eftir.

Nú þegar er farið að orða hann við Southampton í janúarglugganum, þar sem Claude Puel, maðurinn sem náði því besta út úr honum hjá Nice, er nú við stjórnvölinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telja að VAR hafi teiknað línuna á vitlausan stað til að bjarga United frá áfalli – Sjáðu myndina

Telja að VAR hafi teiknað línuna á vitlausan stað til að bjarga United frá áfalli – Sjáðu myndina
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari

Ætla með málið lengra – Báðu hann um að drepa sig og sungu um að hann væri nauðgari
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Nú ólíklegt að hann taki við Liverpool og annað enskt félag komið inn í myndina

Nú ólíklegt að hann taki við Liverpool og annað enskt félag komið inn í myndina