Verðum meðal þáttökuþjóða á EM næsta sumar
Þrátt fyrir að hafa átt eftir að spila tvo leiki seinni partinn í dag tryggði íslenska liðið sér sæti á mótinu þegar Finnar töpuðu fyrir Portúgölum 3-2. Auk Íslands þá eru Skotar og Belgar komnir með öruggt sæti á EM.
Hallbera Guðný Gísladóttir skoraði fyrsta mark Íslands á 11 mínútu. Þá skoraði Dagný Brynjarsdóttir tvo mörk. Annað á 21 mínútu og seinna markið kom svo á 46. mínútu. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði svo fjórða mark Íslands á 68 mínútu.
6.037 áhorfendur voru á leiknum og óskum við stelpunum okkar til hamingju með sigurinn í kvöld sem og sætið á EM næsta sumar.