Leikurinn kemur út 29. september
Tölvuleiksins FIFA 17 er beðið með mikilli eftirvæntingu víða um heim. Leikurinn hefur verið vinsæll á Íslandi undanfarin ár en nýjasta víbótin mun væntanlega ekki draga úr þeim vinsældum.
EA Sports hefur staðfest að íslenska víkingaklappið, sem stuðningsmenn gerðu frægt á EM, verði í leiknum. FIFA 17 er væntanlegur í verslanir 29. september næstkomandi. Þeir sem hafa áhyggjur af því að framleiðendur leiksins standi ekki rétt að klappinu geta lagt mat á það hér.