Gylfi Þór Sigurðsson er svo sannarlega fyrirmynd fyrir unga knattspyrnuáhugamenn
Fallegt augnablik fyrir leik Swansea og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær hefur vakið talsverða athygli í netheimum.
Á myndbandinu má sjá ungan stuðningsmann Swansea, sem varð þess heiðurs aðnjótandi að fylgja stjörnum velska liðsins inn á völlinn, vart trúa sínum eigin augum þegar hann sér íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson.
Sá stutti er með stjörnur í augunum og kemur varla upp orði.
Gylfi er ein skærasta stjarnan í liði Swansea og hefur hann verið einn allra besti leikmaður liðsins á undanförnum árum. Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli og skoraði Gylfi annað marka Swansea úr vítaspyrnu.
Myndbandið má sjá hér að neðan en ljóst er að þessi ungi stuðningsmaður mun seint gleyma þessu augnabliki.
??
That moment when you meet your hero… ? pic.twitter.com/23brSae7BM
— Swansea City AFC (@SwansOfficial) September 12, 2016