Íslensk fimleikakona keppti í fyrsta sinn á Ólympíuleikum þegar keppni í fjölþraut fór fram í Ríó nótt. Irina Sazonova stóð sig vel en komst ekki í úrslit en þangað komust 24 fimleikakonur. Hún hlaut alls 53.200 stig fyrir æfingar á tvíslá, jafnvægisslá, stökk og fyrir æfingar á gólfi.
Irina hafnaði í 40. sæti og er keppni hennar á ólympíuleikunum þar með lokið.