fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Sport

Unglingalið Barcelona sýndi fádæma drenglyndi: Þetta er hægt að taka til fyrirmyndar

Fallegt myndband af frábærum, ungum íþróttamönnum

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 29. ágúst 2016 22:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að unglingalið spænska stórliðsins Barcelona, skipað leikmönnum 12 ára og yngri, hafi sýnt af sér fádæma drenglyndi eftir úrslitaleik liðsins gegn japanska liðinu Omiya Ardija Junior í gær.

Liðin áttust við í úrslitaleik Junior Soccer World Challenge-mótsins og fór svo að liðsmenn Barcelona báru sigur úr bítum eftir hörkuleik, 1-0.

Eins og gefur að skilja voru leikmenn japanska liðsins miður sín yfir því að hafa tapað leiknum. Margir leikmanna liðsins voru óhuggandi og áttu um sárt að binda, enda mótið eitt það stærsta sinnar tegundar í heiminum.

Myndband af því sem gerðist eftir leik hefur farið sem eldur í sinu um netið, en þar má sjá leikmenn Barcelona stappa stálinu í leikmenn japanska liðsins. Þeir þakka þeim ekki bara fyrir leikinn, heldur taka utan um þá, hughreista þá og reyna hvað þeir geta að hugga þá.

Fremstur í flokki fór fyrirliði Barcelona-liðsins, Adria Capdevila Puigmal. Óhætt er að segja það þarna fari efnilegir íþróttamenn sem eru lausir við allan óþarfa hroka. Og mættu eflaust margir taka sér þá til fyrirmyndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls