fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Sport

Fellaini bjargaði konu sem tróðst nærri því undir

Allt ætlaði um koll að keyra þegar Marcus Rashford skoraði sigurmark United gegn Hull

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 28. ágúst 2016 12:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Belgíski landsliðsmaðurinn Marouane Fellaini kom konu til bjargar þegar allt ætlaði um koll að keyra undir lok leiks Manchester United og Hull í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Fellaini hefur haft það orð á sér að vera nokkuð grófur í leik sínum en sitt sýnist hverjum í þeim efnum.

Marcus Rashford skoraði sigurmark leiksins þegar komið var fram í uppbótartíma og er óhætt að segja að stuðningsmenn Manchester United hafi fagnað markinu ákaft.

Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér myndaðist mikill troðningur neðst í stúkunni á KCOM-vellinum, heimavelli Hull, þegar leikmenn United fögnuðu markinu.

Kona á besta aldri lenti í vandræðum og tróðst næstum því undir þegar stuðningsmenn þjöppuðu sér neðst í stúkuna til að vera nær hetjunum sínum. Marouane Fellaini var þó fljótur að benda á að konan væri í vandræðum. Konan mun hafa sloppið ómeidd en ljóst er að verr hefði getað farið.

Fellaini hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga hjá Manchester United eftir að José Mourinho tók við liðinu. Hann hefur leikið vel á miðjunni hjá United í byrjun tímabils. Eftir leik sagði Mourinho þó að Fellaini hefði meiðst í leiknum og líkur væru á að Fellaini yrði frá keppni næstu vikurnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche