Aníta Hinriksdóttir keppir í dag í undanriðlum 800 metra hlaups kvenna. Aníta hleypur á áttundu braut í fjórða riðli sem ræstur verður kl. 11.16 að brasilískum tíma (14.16 að íslenskum tíma).
Aníta er skráð með fimmta besta tíma þeirra átta sem hlaupa í riðlinum. Tvær fremstu í riðlunum átta komast beint áfram í undanúrslit, þess fyrir utan komast þær með sex bestu tímana af þeim sem ekki eru í efstu tveimur sætunum í riðlunum áfram í undanúrslitin.
Íslandsmet Anítu í greininni er 2,00,49 mínútur en ljóst er að hún mun þurfa að eiga frábært hlaup í dag til að komast áfram.
Allir aðrir íslensku keppendurnir á ólympíuleikunum hafa lokið keppni. Leikunum lýkur á sunnudaginn.