Einn Íslendingur verður í eldlínunni á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Eygló Ósk Gústafsdóttir keppir í 200 metra baksundi og hefst sundið hennar um klukkan 17.30 að íslenskum tíma. Eygló er með skráðan 13. besta tímann af keppendum í sundinu en Íslandsmet hennar í greininni er 2,09,04 mínútur.
Nú fer að styttast í að aðrir íslenskir keppendur á ólympíuleikunum hefji keppni. Á morgun, föstudag, verða þeir Þormóður Árni Jónsson, júdómaður, og Guðni Valur Guðnason, kringlukastari, í sviðljósinu. Þormóður Árni er að keppa á sínum þriðju ólympíuleikum en Guðni Valur er á sínum fyrstu leikum.
Ásdís Hjálmsdóttir keppir í spjótkasti 16. ágúst og Aníta Hinriksdóttir tekur þátt í 800 metra hlaupi 17. ágúst.