Íslendingar halda áfram að gera það gott á sviði íþróttanna en þrjár íslenskar frjálsíþróttakonur verða í eldlínunni á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Amsterdam. Ásdís Hjálmsdóttir ríður á vaðið þegar hún hefur keppni í úrslitum spjótkastskeppninnar kl.16.45. Um 18.20 fara fram undanúrslit í 400 metra grindahlaupi kvenna en þar tryggði Arna Stefanía Guðmundsdóttir sér sæti með glæsilegu hlaupi í undanrásum. Í lok dags, kl.19.40, hleypur Aníta Hinriksdóttir síðan til úrslita í 800 metra hlaupi.
Um er að ræða frábæra upphitun fyrir Ólympíuleikanna sem hefjast í Ríó de Janeiro eftir tæpan mánuð en Aníta og Ásdís verða þar báðar meðal þátttakenda.
Hægt verður að fylgjast með valkyrjunum í beinni útsendingu á RÚV.