Bjarki Gunnlaugsson hjá Total Football segist fá fyrirspurnir frá fleiri löndum en áður
„Það er mun meira hringt frá löndum og klúbbum sem voru ekkert endilega að sýna Íslandi áhuga áður,“ segir Bjarki Gunnlaugsson hjá umboðsskrifstofunni Total Football. Þrír landsliðsmenn hafa gengið til liðs við ný lið frá því Ísland lauk þátttöku á EM. Hörður Björgvin Magnússon gekk til liðs við Bristol City, Rúnar Már Sigurjónsson samdi við Grasshoppers og hermt er að Jóhann Berg Guðmundsson hafi náð samkomulagi við Burnley, nýliða í ensku úrvalsdeildinni.
Árangur Íslands á EM hefur vakið athygli um heim allan. Enginn bjóst fyrirfram við að liðið kæmist í 8 liða úrslit á sínu fyrsta stórmóti. Total Football er með tíu leikmenn úr 23 manna landsliðshópi Íslands á sínum snærum auk ríflega tuttugu aðra íslenska atvinnumenn.
„Íslenskir leikmenn ættu að vera áhugaverðir fyrir öll lönd.“
Bjarki segir að nú hafi kviknað mikill áhugi á íslenskum leikmönnum – nóg sé að gera. „Menn sjá að þessir strákar sem voru að spila úti geta spilað á mjög háu getustigi,“ segir Bjarki við DV. Hann á von á því að nokkrir til viðbótar eigi eftir að skipta um félög á næstunni auk þess sem aðrir fái nýja og betri samninga. Sumir hverjir séu þegar á góðum stað. Þar nefnir hann Birki Bjarnason hjá Basel í Sviss, Jón Daða Böðvarsson hjá Kaiserslautern í Þýskalandi og Gylfa Þór Sigurðsson hjá Swansea. „Það þarf að koma eitthvað verulega gott svo þessir leikmenn skipti um félög,“ segir hann en bæði Birkir og Jón Daði eru tiltölulega nýgengnir til liðs við sín félög. „Kolbeinn [Sigþórsson] er spurningarmerki – hvort hann fari eitthvað annað.“
Bjarki segir að allir þessir leikmenn sem spiluðu á EM séu nú hærra metnir en áður. Fyrir þá skipti hins vegar miklu máli að liðið haldi áfram að standa sig vel. Og fyrir íslenska knattspyrnu skipti líka máli að íslensku félagsliðin standi sig vel í Evrópukeppnum. Landsliðið sé eitt og íslenska deildin annað.
Bjarki segir að hingað til hafi leikmenn yfirleitt fyrst farið út til Skandinavíu og þaðan til landa eins og Hollands. Nú verði hann aftur á móti var við fyrirspurnir frá löndum sem sjaldan hafi haft samband áður. „Íslenskir leikmenn ættu að vera áhugaverðir fyrir öll lönd. Vinnusemi þeirra, dugnaður og viðhorf er það gott. Þeir eru tæknilega góðir og flottir íþróttamenn,“ segir Bjarki.
Hann býst þó ekki við að leikmenn héðan fari beint út í stórlið. Það gerist ekki þannig að menn fari beint úr áhugamannaliði í Bayern München eða önnur stórlið. „Þetta er alltaf einhver tröppugangur.“
Lið eins og Ísland, Portúgal og Leicester hafa að mati Bjarka sýnt umheiminum að fótbolti snýst ekki um að hafa 11 bestu leikmennina innan sinna raða. Það sem skipti máli sé að hafa besta liðið. Hann nefnir Gylfa Þór Sigurðsson sem dæmi um leikmann sem fórni sér fyrir liðið. „Hann er okkar stærsta stjarna. Ef hann hefði verið að hugsa um sjálfan sig þá hefði hann ekki unnið jafn mikið fyrir liðið og raun ber vitni. Hjá Swansea er hann meira í færum og að skora, en í landsliðinu fórnar hann sér algjörlega fyrir liðið, þótt hann sé í öðru hlutverki.“
Bjarki segir að nánast á hverjum leik í Pepsi-deildinni séu útsendarar frá einhverjum liðum. Hann á von á mikilli aukningu þar á.