Katrín Tanja Davíðsdóttir íþróttamaður
Katrín Tanja Davíðsdóttir íþróttamaður
97.000 kr. á mánuði
Katrín Tanja Davíðsdóttir, heimsmeistari í crossfit og hraustasta kona heims, er nú búsett í Boston í Bandaríkjunum þar sem hún æfir af kappi fyrir heimsleikana í crossfit sem haldnir verða síðar í júlímánuði. Hún er 22 ára gömul og fékk tæplega 38 milljónir króna í verðlaunafé fyrir að vinna kvennaflokk leikanna í fyrra. Lögheimili hennar er aftur á móti skráð á Íslandi og því má finna upplýsingar um útsvarsgreiðslur hennar í álagningarskrám RSK.
DV birtir í dag, líkt og síðustu ár, upplýsingar um tekjur ríflega 2.600 Íslendinga. Upplýsingarnar byggja á greiddu útsvari samkvæmt álagningarskrám Ríkisskattstjóra (RSK). Í sérstöku tekjublaði DV má því finna upplýsingar um laun forstjóra, stjórnmálamanna, íþróttafólks, listamanna og fjölda annarra úr öðrum atvinnugreinum.