Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson, sem verið hefur viðriðinn íslenska landsliðið um langt skeið, var boðið á leik Íslands og Frakklands í 8-liða úrslitum Evrópumótsins.
Gunnleifur segir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann þakkar Vífilfelli kærlega fyrir boðið. Gunnleifi var boðið á leikinn ásamt konu sinni en þurfti að afþakka sem lið hans, Breiðablik, á leik gegn ÍBV í Borgunarbikarnum á sunnudag, sama dag og Ísland og Frakkland mætast.
„Ég má til með að þakka Coke/Vífilfell fyrir að hafa samband við mig og vilja bjóða mér og konunni á leikinn í Paris. Ég þurfti að afþakka vegna leiks okkar blika við ÍBV á sunnudag. Ég er samt hrærður yfir hlýhug Coke/Vífilfells í garð okkar hjóna?. Áfram Ísland!??“