Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra horfði á landsleik Íslands og Englands í góðum hópi vina í gærkvöldi. Sigurður birti meðfylgjandi myndband á Facebook-síðu sinni og er óhætt að segja að Sigurður Ingi hafi verið í sjöunda himni þegar slóvenski dómarinn flautaði til leiksloka.
„Oh hvað það er frábært að vera Íslendingur,“ sagði Sigurður Ingi á Facebook-síðu sinni.