Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims, tilkynnti eftir tap Argentínu gegn Chile í úrslitaleik Suður-Ameríkukeppninnar, Copa America, að hann væri hættur að leika með landsliðinu.
Argentína tapaði úrslitaleiknum í vítaspyrnukeppni, 4-2, og brenndi Messi af sinni spyrnu. Argentína tapaði þar með sínum fjórða úrslitaleik á aðeins níu árum. Liðið hefur tapað síðustu tveimur úrslitaleikjum Copa America í vítaspyrnukeppni, báðum gegn Chile en liðið tapaði einnig úrslitaleik HM 2014 gegn Þýskalandi. Þá tapaði Argentína gegn Brasilíu í úrslitaleik Copa America árið 2007.
„Ferli mínum með landsliðinu er lokið. Ég hef gert allt sem ég get og það er sárt að hafa ekki tekist að vinna í keppninni,“ sagði Messi sem er 29 ára eftir leikinn. Hann hefur aðeins unnið til einna verðlauna með argentínska landsliðinu, en Messi varð Ólympíumeistari árið 2008.
„Þetta hafa verið fjórir úrslitaleikir, ég reyndi og þetta var eitthvað sem ég vildi mikið. Þannig að ég held að þessu sé lokið. Ég held að það sé best fyrir alla, fyrst og fremst fyrir sjálfan mig en líka aðra,“ sagði Messi sem þótti leika vel í keppninni. Hann skoraði fimm mörk og varð markahæsti leikmaður argentínska liðsins frá upphafi með 55 mörk.