fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Sport

Ronaldo í ruglinu: Sjáðu þegar hann grýtti hljóðnema fréttamannsins út í vatnið

Cristiano Ronaldo hefur verið með allt á hornum sér á EM í Frakklandi

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. júní 2016 11:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður heims og fyrirliði portúgalska landsliðsins í fótbolta, hefur verið með allt á hornum sér á Evrópumótinu sem nú stendur yfir í Frakklandi.

Í morgun tók steininn úr þegar Ronaldo grýtti hljóðnema fréttamanns út í vatn. Fréttamaðurinn brá sér að Ronaldo sem var í göngu með liðsfélögum sínum þegar atvikið varð. Ronaldo greip í hljóðnemann og henti honum í vatnið. Óhætt er að segja að uppátæki þessa frábæra knattspyrnumanns hafi komið fréttamanninum í opna skjöldu og eflaust fleirum sem fylgdust með.

Ronaldo var pirraður eftir fyrsta leik Portúgala gegn Íslendingum en leikurinn endaði sem kunnugt er 1-1. Ronaldo gagnrýndi spilamennsku íslenska liðsins harðlega eftir leik. Portúgal gerði svo jafntefli gegn Austurríki í næsta leik sínum, en í þeim leik klúðraði Ronaldo vítaspyrnu.

Portúgalska liðið á nú í hættu að falla úr leik á EM. Liðið mætir Ungverjalandi í kvöld og ef svo fer að Ungverjaland sigrar þá fara Cristiano Ronaldo og félagar í snemmbúið sumarfrí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmenn Arsenal í rusli

Leikmenn Arsenal í rusli
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann
433Sport
Í gær

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist
433Sport
Í gær

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“