Marcus Rashford, 18 ára gamall framherji Manchester United, skoraði fyrir enska landsliðið gegn Ástralíu eftir rúmar tvær mínútur. Leikurinn fór fram á Stadium of light og er liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem fram fer í Frakklandi.
Rashford er þar með yngsti leikmaðurinn til að skora í sínum fyrsta landsleik. Fáir vissu í vetur hver þessi ungi leikmaður var en það átti eftir að breytast þegar hann skoraði tvö mörk í 5-1 sigri á Midtjylland.
Rashford kom óvænt inn í byrjunarlið United eftir að Anthony Martial meiddist í upphitun fyrr í vetur. Ef ekki hefði verið fyrir meiðsli Will Keane í bikarleik gegn Shrewsbury er óvíst að þessi ungi leikmaður hefði fengið tækifæri með stórliði United og hans ótrúlega ævintýri hafist.
Hér má lesa umfjöllun DV um þennan magnaða unga leikmann