Árleg hreyfivika UMFÍ var sett í dag
UMFÍ setti af stað í hádeginu í dag árlega hreyfiviku félagsins. Bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu ásamt forsvarsmönnum Ölgerðarinnar, UMFÍ, ÍSÍ og 10-11 ára gömul börn í Hvassaleitisskóla í Reykjavík tóku þátt í að pnun vikunnar með stígvélakasti.
Í tilkynningu frá UMFÍ segir að aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar hafi átt lengsta kastið, en hann var staðgengill Illuga á setningunni. Þá segir að elsti keppandinn í dag hafi verið Hjörtur Þórarinsson sem er varaformaður Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra. Hann er 89 ára gamall.
Þá kepptu einnig meðal annars Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ ásamt Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar og þær Helga Jóhannsdóttir og Auður Inga Þorsteinsdóttir fyrir hönd UMFÍ.
Hreyfivikan er haldin nú í fjórða skiptið, en hún var fyrst haldin árið 2012. Mörg þúsund manns taka þátt í henni á ári hverju. Þá hvetur UMFÍ alla til að nota heilsuforritið Sidekick sem stofnað var af tveimur íslenskum læknum.