Segir umfjöllun um mál Hermanns hafa verið óvægna
Forráðamenn Fylkis segja að ekkert verði frekar aðhafst í máli Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara liðsins, eftir uppákomu í leik liðsins gegn ÍBV síðastliðinn mánudag.
Eins og DV greindi frá síðastliðinn mánudag,tók Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, stjórnarmann í ÍBV hálstaki eftir leik liðanna í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla.
Sjá nánar: Hermann tók stjórnarmann ÍBV hálstaki: „Menn bregðast bara misvel við tapi“
Þá sagði Ólafur Geir Magnússon, stjórnarmaður Fylkis málið hafa verið blásið upp í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Að sögn Ólafs er málinu lokið af hálfu Fylkis og segir þá hafa verið að kýtast en nú hafi málið verið „leyst eins og fullorðnum mönnum sæmir,“ sagði Ólafur við fréttastofu Stöðvar 2. Ólafur sagði Fylki ekki ætla að aðhafast meira í málinu, en segir það hafa komið illa út og að umfjöllunin hafi verið mjög óvægin í garð Hermanns. „Það er eins og Hermann sé skotspónn fjölmiðla,“ sagði hann.
„Við sáum svona atvik uppi í Kór um daginn þegar landsliðsþjálfari kýlir annan þjálfara í punginn. Eruð þið búnir að tala við stjórnarmenn Keflvíkinga? Ég veit ekki til þess,“ sagði Ólafur Geir við Stöð 2 og vísaði til þess að þjálfari Keflavíkur, Þorvaldur Örlygsson hafi kýlt Reyni Leósson, þjálfara HK, eftir leik liðanna í Inkasso-deildinni.