Framkvæmdastjóri KSÍ segir Hermann ekki hafa verið góða fyrirmynd
Framkvæmdastjóri KSÍ, Klara Bjartmarz hafur íhugað að senda mál Hermanns Hreiðarssonar, fyrrum landsliðsmanns og þjálfara Fylkis á borð aganefndar KSÍ. Þetta kemur fram á Vísi.is.
Eins og DV greindi frá á mánudagskvöld, þá tók Hermann stjórnarmann í ÍBV hálstaki eftir leik liðanna á heimavelli Fylkis í Árbæ.
Sjá nánar: Hermann tók stjórnarmann ÍBV hálstaki: „Menn bregðast bara misvel við tapi“
Í samtali við Vísi sagðist Klara vera að bíða eftir gögnum um málið, sérstaklega skýrslu dómara leiksins. Að hennar sögn hafi Klara talið málið þurfa nánari skoðun. Þá segir hún hegðun hans ekki vera knattpspyrnu til framdráttar og segir hann ekki hafa verið góða fyrirmynd.
Sjá nánar: Hermann kveðst ekki eiga við reiðivandamál að stríða: Neitar að hafa tekið Hannes hálstaki