fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Úrvalslið Aston Villa

Fallið úr úrvalsdeild í fyrsta sinn – Svona liti liðið út ef það hefði ekki selt sína bestu leikmenn

Ritstjórn DV
Laugardaginn 23. apríl 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um helgina varð endanlega ljóst að Aston Villa, það fornfræga félag, er fallið um deild. Liðið, sem hefur leikið í efstu deild frá haustinu 1987 og þar til nú, er eitt sjö liða sem hafa leikið í Úrvalsdeildinni frá stofnun hennar, árið 1992. Hin liðin eru Arsenal, Liverpool, Manchester United, Everton, Tottenham og Chelsea. Það lið sem lengst hefur leikið í efstu deild í Englandi er Arsenal, en það féll síðast vorið 1913.

Aston Villa hefur mátt muna sinn fífil fegurri. Liðið vann deildina síðast árið 1981 en í tvígang, árin 1990 og 1993, varð liðið í öðru sæti efstu deildar. Liðið vann síðast titil árið 2008 þegar það vann Evrópukeppni bikarhafa, Intertoto Cup. Liðið komst reyndar í úrslit FA Cup á síðustu leiktíð en hefur annars ekki verið til stórræða síðustu árin. Félagið hefur naumlega sloppið við fall síðustu þrjú keppnistímabil en stutt er síðan liðið var í hópi þeirra liða sem börðust um Evrópusæti. Þannig hafnaði liðið þrjár leiktíðir í röð, undir stjórn Martins O‘Neil, í sjötta sæti. Það var árin 2008, 2009 og 2010. Frá brotthvarfi O‘Neil hefur leiðin legið niður á við.

Á þessu keppnistímabili hefur lengi verið ljóst í hvað stefndi. Það voru því kaldar kveðjur sem eigandinn Randy Lerner sendi stuðningsmönnum þegar hann ákvað að veita stjóranum, Remi Garde, ekki fé til að styrkja liðið í janúarglugganum. Liðið átti aldrei von.

Aston Villa hefur ekki um langa hríð haft fjárhagslegt bolmagn til að hafna tilboðum í góða leikmenn félagsins. Bestu bitarnir hafa þannig verið seldir jafnharðan og þeir slá í gegn. Liðið á þessu tímabili er eitt það versta sem leikið hefur í úrvalsdeildinni. Squawka tók saman lista yfir þá leikmenn sem gætu skipað lið Villa í dag, ef þeir hefðu ekki verið seldir.


Brad Guzan

Staða: Mark
Leikir fyrir Villa: 140
Seldur fyrir: Á ekki við
Félag í dag: Aston Villa

Slæmt gengi Villa verður seint skrifað á Guzan. Hann hefur leikið með Villa síðan 2008 og var besta bjartasta von félagsins um að liðið félli ekki um deild. Guzan hefur verið aðalmarkvörður liðsins undanfarnar fjórar leiktíðir.


Mynd: 2015 Getty Images

Micah Richards

Staða: Hægri bakvörður
Leikir fyrir Villa: 23
Seldur fyrir: Á ekki við
Félag í dag: Aston Villa

Richards er yngsti varnarmaðurinn til að vera valinn í enska landsliðið, aðeins 17 ára gamall. Hann ólst upp hjá Manchester City, þar sem hann var í tíu ár áður en hann gekk í raðir Villa 2015. Hann glímdi við meiðsli á tímabilinu en var um tíma fyrirliði undir stjórn Tim Sherwood.


Gary Cahill

Staða: Miðvörður
Leikir fyrir Villa: 31
Seldur fyrir: 5 milljónir punda
Félag í dag: Chelsea

Cahill fór frá Villa til Bolton 2008 áður en hann gekk í raðir Chelsea 2012. Afar áreiðanlegur varnarmaður sem hefur notið velgengni með landsliðinu allt frá árinu 2009. Drjúgur í markaskorun af varnarmanni að vera enda hefur hann skorað 38 mörk fyrir félög sín og landslið.


Mynd: EPA

Ron Vlaar

Staða: Miðvörður
Leikir fyrir Villa: 86
Seldur fyrir: Ekki krónu
Félag í dag: AZ Alkmaar

Vlaar var lykilmaður í liðið Villa á árunum 2012–2015. Það sem varpaði skugga á þann tíma voru meiðsli af ýmsum toga. Sem fyrirliða tókst Vlaar að afstýra liðinu frá Falli 2012/2013 en svo fór að hann hafnaði nýjum samningi árið 2015. Hann fór heim til Hollands.


Ryan Bertrand

Staða: Vinstri bakvörður
Leikir fyrir Villa: 16
Seldur fyrir: Á ekki við
Félag í dag: Southampton

Bertrand var á mála hjá Chelsea frá árinu 2006 til 2015. Á þeim tíma lék hann sem lánsmaður úti um allar trissur. Hann lék 16 leiki fyrir Villa árið 2014 en færði sig svo til Southampton þar sem honum gekk sérstaklega vel. Svo fór að hann skrifaði undir varanlegan samning við félagið og var einn af bestu leikmönnum deildarinnar á síðustu leiktíð.


Mynd: Mynd: Reuters

James Milner

Staða: Hægri kantmaður
Leikir fyrir Villa: 93
Seldur fyrir: 26 milljónir punda
Félag í dag: Liverpool

Milner sló í gegn með Villa og var af áhorfendum valinn besti leikmaður liðsins auk þess að vera valinn efnilegastur í deildinni af samtökum leikmanna. Dugnaður og elja einkennir leik landsliðsmannsins en hann var seldur til Manchester City fyrir háa fjárhæð 2010.


Mynd: EPA

Steven Davis

Staða: Miðjumaður
Leikir fyrir Villa: 102
Seldur fyrir: 4 milljónir punda
Félag í dag: Southampton

Villa var fyrsta úrvalsdeildarfélag Davis. Á fyrsta tímabili sínu með liðinu, 2004/2005, var hann bæði valinn efnilegastur og bestur. Hann hefur verið fastamaður í landsliði Norður-Íra síðastliðinn áratug og er nú á mála hjá Southampton, eftir að hafa spilað bæði með Rangers og Fulham.


Mynd: Reuters

Fabian Delph

Staða: Miðjumaður
Leikir fyrir Villa: 134
Seldur fyrir: 8 milljónir punda
Félag í dag: Manchester City

Delph sló í gegn á miðjunni hjá Villa 2012/2013 og virtist eiga bjarta framtíð fyrir sér hjá félaginu. Blekið hafði varla þornað á yfirlýsingu leikmannsins, undir lok leiktíðarinnar 2014/2015, um að hann ætlaði að vera áfram hjá félaginu, þegar hann skrifaði undir hjá City. Þetta gramdist stuðningsmönnum mjög.


Mynd: EPA

Marc Albrighton

Staða: Vinstri kantmaður
Leikir fyrir Villa: 101
Seldur fyrir: Leystur undan samningi
Félag í dag: Leicester

Albrighton ólst upp hjá félaginu og lék í um fjögur ár með aðalliðinu. Hann fór svo sem lánsmaður til Wigan en fékk ekki framlengdan samning sinn hjá Aston Villa. Hann gekk í raðir Leicester 2014 og er nú sá enski leikmaður í deildinni sem búið hefur til flest marktækifæri fyrir félaga sína, en Leicester er hársbreidd frá því að verða enskur meistari.


Christian Benteke

Staða: Framherji
Leikir fyrir Villa: 101
Seldur fyrir: 32,5 milljónir punda
Félag í dag: Liverpool

Benteke er besti framherji sem leikið hefur í með Aston Villa í áraraðir. Hann lék með liðinu í þrjú keppnistímabil og skoraði 42 mörk í 89 deildarleikjum. Hann fór til Liverpool 2015. Þar hefur ekki gengið eins vel og hann gæti farið frá félaginu í sumar.


Ashley Young

Staða: Sóknarmaður
Leikir fyrir Villa: 190
Seldur fyrir: 15–20 milljónir punda
Félag í dag: Manchester United

Young fékk ekki samning hjá Watford árið 2007 en Villa sýndi honum áhuga. Þar átti hann frábæran tíma í fjögur ár. En eins og svo margir aðrir sem slá í gegn, vakti hann athygli fjársterkari liða. Liverpool og Manchester United buðu í hann og hann skrifaði undir hjá United 2011. Þar hefur gengið upp og ofan.


Bekkurinn: Scott Carson, James Collins, Stewart Downing, Michael Bradley, Gareth Barry, Darren Bent, Wayne Routledge.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Í gær

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu