Nýr þjálfari verður líklega ráðinn strax eftir páska
Sterkur orðrómur er á kreiki um að Geir Sveinsson verði landsliðsþjálfari karlaliðs Íslands í handbolta. Tveir mánuðir eru síðan Aron Kristjánsson lét af störfum eftir afleitt gengi á Evrópumótinu í janúar.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að Geir sé líklegasti kosturinn.
Íslendingar mæta Norðmönnum í tveimur vináttuleikjum þann 3. og 5. apríl og segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, í samtali við Morgunblaðið að hann reikni með því að þjálfaramálin skýrist strax eftir páskana. Hann vildi þó ekkert tjá sig um það við hvern sambandið ætti í viðræðum. Áður hefur verið greint frá því að sænska kempan Ljubomir Vranjes hafi hafnað HSÍ.
Geir var sagt upp störfum hjá Magdeburg um miðan desember síðastliðinn, en hann hefur verið að vinna að því að gera upp sín mál hjá þýska félaginu. Þegar því lýkur er talið líklegt að hann semji við HSÍ um að taka að sér þjálfun íslenska liðsins.