fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Þeir bestu sem ekki unnu úrvalsdeildina

Steven Gerrard, Gianfranco Zola, Matt Le Tissier og allir hinir

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 3. desember 2016 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steven Gerrard, fyrrverandi leikmaður Liverpool, tilkynnti í liðinni viku að hann væri hættur í fótbolta, 36 ára gamall. Óhætt er að segja að Gerrard hafi átt frábæran feril með Liverpool þar sem hann vann Meistaradeildina, UEFA-bikarinn, enska bikarinn tvisvar og deildabikarinn þrisvar.

En Gerrard tókst aldrei á þeim 17 leiktíðum sem hann lék með Liverpool að vinna ensku úrvalsdeildina. Hér gefur að líta yfirlit yfir aðra frábæra leikmenn, sem settu mark sitt á ensku úrvalsdeildina, en tókst aldrei að vinna titilinn eftirsótta. Sumir þessara leikmanna eru enn að og geta enn nælt í titil áður en skórnir fara upp í hillu. Þá skal tekið fram að leikmenn sem eru tiltölulega nýkomnir í deildina, eða enn ungir að árum, eru ekki í úttektinni. Ber þar að nefna leikmenn eins og Zlatan Ibrahimovic, Paul Pogba, Philippe Coutinho, Mesut Özil og Alexis Sanchez svo dæmi séu tekin.


Gianfranco Zola

Félag: Chelsea
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 7

Ítalinn smái en knái er í hópi bestu leikmanna úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Zola lék með Chelsea frá 1996 til 2003 en það var áður en Roman Abramovic keypti félagið. Meðan Zola spilaði með Chelsea var félagið yfirleitt í efri hluta deildarinnar en gat illa keppt við Arsenal og Manchester United um titilinn. Zola skoraði 80 mörk í deildinni fyrir Chelsea en vann aldrei titilinn. Zola fékk sess í frægðarhöll enska boltans árið 2006.


Robbie Fowler

Félög: Liverpool, Leeds, Manchester City
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 16

Fowler er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Aðeins Alan Shearer, Wayne Rooney, Andy Cole, Frank Lampard og Thierry Henry hafa skorað fleiri mörk. Fowler skoraði 30 mörk eða meira þrjár leiktíðir í röð á árunum 1994 til 1997 en hafa ber í huga að þá var hann á aldrinum 19 til 22 ára. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá þessum frábæra leikmanni sem hætti í fótbolta árið 2012.


Mynd: Reuters

Matt Le Tissier

Félag: Southampton
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 10

Matt Le Tissier var í uppáhaldi hjá mörgum enda frábær fótboltamaður sem sannaði að það er hægt að vera örfáum kílóum of þungur í deild þeirra bestu. Tissier spilaði nær allan sinn feril með Southampton og var algjör yfirburðamaður í liðinu. Southampton var aldrei í toppbaráttu og því komst þessi magnaði leikmaður aldrei nálægt því að vinna titilinn. Tissier var tekinn inn í frægðarhöll enska boltans árið 2013.


Luis Suarez

Félag: Liverpool
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 4

Suarez er í hópi bestu fótboltamanna heims um þessar mundir en því miður fyrir hann og Liverpool tókst honum ekki að vinna ensku úrvalsdeildina. Suarez var kjörinn leikmaður ársins í úrvalsdeildinni vorið 2014 en það tímabil skoraði hann 31 mark í 33 leikjum í deild. Þetta tímabil reyndist vera hans síðasta með Liverpool – að sinni að minnsta kosti – og raðar kappinn nú inn mörkum með Barcelona.


Gareth Bale

Félag: Tottenham
Leiktíðir í úrvalsdeildinnii: 6

Gareth Bale var langbesti maður Tottenham áður en hann var seldur til Real Madrid fyrir metfé árið 2013. Síðustu þrjár leiktíðir hans með Tottenham var hann valinn í úrvalslið deildarinnar og þá var hann kjörinn leikmaður ársins árin 2011 og 2013. Bale tókst aldrei að vinna úrvalsdeildina með Tottenham en er búinn að vinna Meistaradeildina tvisvar með Real Madrid.


Jimmy Floyd Hasselbaink

Félag: Chelsea, Middlesbrough, Charlton
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 7

Eins og allir vita mynduðu þeir Jimmy Floyd Hasselbaink og Eiður Smári Guðjohnsen eitt besta framherjapar í sögu deildarinnar. Ólíkt Jimmy tókst Eiði að vinna titilinn enda var hann lengur hjá Chelsea. Þegar þessi magnaði Hollendingur var upp á sitt besta raðaði hann inn mörkum fyrir Chelsea, allt í allt gerði hann 88 mörk í 177 leikjum í deild. Hann hélt svo áfram að skora hjá Middlesbrough og síðar Charlton en allt kom fyrir ekki. Aldrei varð Jimmy Floyd Englandsmeistari.


Fernando Torres

Félag: Liverpool, Chelsea
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 7

Fernando Torres var einn besti framherji heims árin 2007 til 2010 og raðaði hann inn mörkum fyrir Liverpool, skoraði 81 mark í 142 deildarleikjum áður en hann var seldur til Chelsea fyrir metfé árið 2010. Þar gekk Torres ekki jafn vel og fór svo að hann var lánaður til Milan árið 2014. Svo vildi til að þetta tímabil varð Chelsea Englandsmeistari og þar sem Torres var fjarverandi á láni fékk hann enga medalíu.


Marcel Desailly

Félag: Chelsea
Leiktíðir í úrvalsdeildinni: 6

Frakkinn ógnarsterki á fullan skáp af verðlaunapeningum eftir að hafa orðið heims- og Evrópumeistari með Frökkum, Ítalíumeistari með AC Milan og Evrópumeistari með Milan og Marseille. Desailly, sem af mörgum er talinn í hópi bestu varnarmanna í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, náði aldrei að vinna deildina með Chelsea.


Aðrir frábærir sem ekki hafa orðið meistarar:

Xabi Alonso
Javier Macherano
Jamie Carragher
Jermain Defoe
Les Ferdinand
Paul Gascoigne
Ruud Gullit
David Ginola
Gianluca Vialli
Robbie Keane
Sami Hyypia

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum